Lyfjagagnagrunnur
Ábyrgðaraðili: Landlæknir
Vinnsluaðili: Tryggingastofnun ríkisins og landlæknir
Tilgangur: Að veita upplýsingar til þess að hafa almennt eftirlit með ávísunum lækna á lyf, að fylgjast með þróun lyfjanotkunar og til þess að hafa eftirlit með ávana- og fíknilyfjum.
Innihald: Upplýsingar af lyfseðlum sem skráðar eru við afgreiðslu lyfja í lyfjaverslunum. Til ársloka 2009 voru lyfjaávísanir á heilbrigðisstofnunum utan við þetta gagnasafn. Á árinu 2010 byrjaði fyrirtækið Lyfjaver, sem sér um vélskömmtun lyfja fyrir fjölda hjúkrunarheimila, að senda inn gögn um lyfjaávísanir fyrir íbúa þeirra hjúkrunarheimila.
Tímabil: Rafræn skrá með gögnum frá og með 1. janúar 2002. Um 2.300.000 færslur á ári.
Uppruni gagna: Gögn af lyfseðlum skráð í upplýsingakerfi lyfjabúða og þau send rafrænt í lyfjagagnagrunn.
Skráningaratriði: Afgreiðslustaður, dagsetning afgreiðslu, póstnúmer, læknanúmer, ATC kóði lyfs og magn.
Sambærileg eða skyld gagnasöfn: Tölfræðigagnagrunnur Tryggingastofnunar ríkisins. Sambærilegar skrár eru einnig haldnar á Norðurlöndum.
Úrvinnsla og birting: Reglubundin úrvinnsla sem nýtt er til eftirlits. Fyrirhugað er að birta reglulega úrvinnslu á vef landlæknis. Landlæknisembættið stuðlar að rannsóknum á heilbrigðissviði, þ.m.t. rannsóknum á lyfjanotkun landsmanna. Slíkar rannsóknir eru háðar samþykki vísindasiðanefndar og Persónuverndar.
Saga: Árið 2003 voru samþykkt lög á Alþingi um breytingar á lyfjalögum og læknalögum sem kváðu á um starfrækslu tveggja gagnagrunna til þess að nota við eftirlit með lyfjanotkun, lyfjaávísunum og lyfjakostnaði. Þessir gagnagrunnar, þ.e. tölfræðigagnagrunnur og lyfjagagnagrunnur skyldu geyma upplýsingar sem Tryggingastofnun ríkisins (TR) fær frá lyfsölum. Samkvæmt lögum rekur TR tölfræðigagnagrunninn, sem er ópersónugreinanlegur, en landlæknir rekur lyfjagagnagrunn sem er persónugreinanlegur. Lög um Lyfjagagnagrunn landlæknis tóku gildi 1. janúar 2005, en starfræksla hans hófst síðar á því ári.
Landlæknir endurskoðaði þarfagreiningu fyrir upplýsingar úr lyfjagagnagrunni í apríl 2008.
Síðast breytt/uppfært 22. febrúar 2011