MONICA skrá

Ábyrgðaraðili:  Landlæknir

 

Vinnsluaðili:  Hjartavernd

 

Tilgangur:  Að safna í eina skrá upplýsingum um öll skráð tilvik bráðrar kransæðastíflu á Íslandi, ásamt upplýsingum um áhættuþætti og meðferð meðal einstaklinga á aldrinum 25-74 ára.  Skránni er ætlað að veita upplýsingar um breytingar á tíðni kransæðasjúkdóma og meta að hve miklu leyti slíkar breytingar tengjast breytingum á þekktum áhættuþáttum, daglegum lifnaðarháttum, heilbrigðisþjónustu og félagslegum aðstæðum.

 

Innihald:  Tiltekin gögn um öll tilvik bráðar kransæðastíflu sem greinst hafa frá 1981 meðal fólks á aldrinum 25-74 ára. Byggt á Monica rannsókninni sem er fjölþjóðleg rannsókn unnin í samvinnu og undir yfirumsjón Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Nánari upplýsingar um Monica-rannsóknina eru á vefsíðu Hjartaverndar.

 

Tímabil:  Rafræn skrá frá og með 1981.

 

Uppruni gagna:  Gögn eru unnin upp úr sjúkraskrám á sjúkrahúsum, úr sjúklingabókhaldi sjúkrahúsa, en að hluta til úr vistunarskrá heilbrigðisstofnana hjá Landlæknisembættinu hin síðari ár.  Þá eru ákveðnar upplýsingar fengnar af dánarvottorðum og úr krufningaskýrslum.

 

Skráningaratriði:  Skráð er m.a. greiningaflokkur, einkenni, þróun hjartalínurita, niðurstöður hjartaensímmælinga, fyrri tilfelli kransæðastíflu, krufninganiðurstöður og segaleysandi meðferð.

 

Sambærileg eða skyld gagnasöfn:  Þátttökulönd í MONICA WHO verkefninu frá 1981 til 1992.

 

Úrvinnsla og birting:  Ákveðnar töflur eru birtar á vef landlæknis.  Niðurstöður úr MONICA rannsókninni á Íslandi 1981-1992 voru birtar í fylgiriti við Heilbrigðisskýrslur landlæknis nr. 2/1997.

 

Saga:  Frá árinu 1981 hefur Rannsóknarstöð Hjartaverndar safnað upplýsingum um tíðni kransæðastíflu meðal Íslendinga á aldrinum 25-74 ára, áhættuþætti þessara sjúkdóma og meðferð. Þetta verkefni er hluti af MONICA-rannsókn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og fól landlæknir Hjartavernd þátttöku í þessu verkefni fyrir Íslands hönd á sínum tíma. Um starfrækslu Monica skrár gildir sérstakur samningur milli landlæknis og Hjartaverndar.

 

Uppfært 18. desember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli