Kvartanir og kærur - tölur

Samkvæmt lögum um landlækni nr. 41/2007  er landlækni skylt að sinna kvörtunum er varða samskipti almennings og veitendur heilbrigðisþjónustunnar. Kvörtun eða kæra er skráð sem slík ef hún leiðir til athugunar af hálfu embættisins. Að jafnaði er erindi ekki skráð sé það leyst með einföldum hætti í gegnum síma eða með leiðbeiningum til viðkomandi um hvert skuli snúa sér varðandi álitamál.

Mál sem koma til athugunar eru misjafnlega umfangsmikil og misjafnlega alvarleg, allt frá kvörtunum yfir hnökrum í samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk og yfir í alvarleg mál vegna mistaka.

Sundurliðun mála og niðurstöður
Frá og með árinu 2005 hefur tíðkast að sundurliða talnaefni um kvartanir og kærur hvers árs í töflum með  eftirfarandi titlum og í þessari röð.

  1. Kvartanir og kærur eftir tilefni.
  2. Kvartanir og kærur eftir stofnunum.
  3. Kvartanir á hendur Landspítala - háskólasjúkrahúsi eftir deildum.
  4. Kvartanir og kærur eftir sviðum sem kvartað var yfir, óháð því hvort um var að ræða tilvik á stofnun, einkastofu eða annars staðar.
  5. Niðurstöður kvartana og kæra.
  6. Aðgerðir Landlæknisembættisins í kjölfar kvartana og kæra. 
    Alvarlegasta aðgerðin er að leggja til við ráðherra að viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður sé sviptur starfsleyfi en heilbrigðisstarfsmanni er einnig veitt lögformleg áminning í framhaldi kvörtunarmáls. Vægasta aðgerð embættisins er að benda á það sem betur mætti fara.

Uppfært 28. mars 2011

Tölur um kvartanir og kærur Statistics on complaints

Tölur um kvartanir og kærur

Almenn umfjöllun

Almenn umfjöllun



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli