Kvartanir
Kvörtun til landlæknis
Heimilt er að beina formlegri kvörtun til landlæknis vegna meintrar vanrækslu og mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu. Þá er notendum heilbrigðisþjónustu einnig heimilt að bera fram formlega kvörtun við landlækni telji þeir að framkoma heilbrigðisstarfsmanna við veitingu heilbrigðisþjónustu hafi verið ótilhlýðileg. Kvörtun á að vera skrifleg og tilefni hennar skal koma þar skýrt fram.
Kvörtun þarf að berast landlækni undirrituð af sjúklingi eða þeim sem fengið hefur umboð hans til þess og á þá skriflegt umboð að fylgja með kvörtuninni. Lesa nánar.
Eyðublað fyrir kvörtun:
Uppfært 16. janúar 2012