Sjúkdómar - tölur
Landlæknisembættið safnar og vinnur upplýsingar um sjúkdóma frá ýmsum aðilum innan heilbrigðisþjónustunnar. Samkvæmt ákvörðun landlæknis var 10. útgáfa flokkunarkerfis Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um sjúkdóma og skyld heilbrigðisvandamál, ICD-10 (International Classification of Diseases and Related Conditions, Rev. 10), tekin upp hér á landi í ársbyrjun 1997 og eru sjúkdómsgreiningar skráðar samkvæmt því flokkunarkerfi.
Nýjasta uppfærsla ICD-10 tók gildi 1. janúar 2009.
Framsetning talna um sjúkdóma styðst við alþjóðlegan stuttlista, svonefndan International Shortlist for Hospital Morbidity Tabulation (ISHMT), en hann byggir á ICD-10 flokkunarkerfinu. ISHMT-listinn er afrakstur fjölþjóðlegs samstarfs á vegum Evrópusambandsins í viðleitni til að samræma framsetningu á sjúkrahúsatölfræði og þar með auðvelda samanburð milli landa.
Á árinu 2005 samþykktu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, Efnahags- og framfarastofnunin (OECD), Hagstofa Evrópubandalagsins (Eurostat) og Norræna heilbrigðistölfræðiráðið (NOMESCO) að nota þennan lista við framsetningu sjúkrahúsatölfræði á þeirra vegum. Nánari upplýsingar, ásamt listanum í heild er að finna á vefsetri WHO.
Uppfært 17. desember 2009