Aðgangur að sjúkragögnum í tölvukerfum

Yfirlæknir eða læknisfræðilegur yfirmaður ber ábyrgð á vörslu sjúkragagna hvort heldur er í tölvu eða á pappír. Hann hefur eftirlit með því að reglum sé framfylgt. Yfirlæknir ákveður hvaða aðgang hver notandi hefur að sjúkragögnum í tölvukerfinu. Hann skiptir notendum í hópa eftir starfssviði og úthlutar hverjum hópi aðgangi. Yfirlæknir getur takmarkað aðgang að sjúkragögnum einstaklinga annað hvort gögnunum í heild eða að einstökum hlutum þeirra eftir því sem þörf krefur. Allur aðgangur að sjúkragögnum skal skráður. Yfirlæknir skal fylgjast reglulega með hverjir nota gögnin og hvernig.

Starfsmenn heilbrigðisstofnana skulu aðeins hafa aðgang að þeim gögnum sem nauðsyn ber til vegna starfa þeirra. Öllu starfsfólki ber að undirrita trúnaðaryfirlýsingu og skal í henni kveðið á um leynd aðgangs- og lykilorða.

Þegar yfirlæknir ákveður aðgang notenda hefur hann eftirfarandi til viðmiðunar:

Læknar
Læknar hafi óheftan aðgang að gögnum þeirra sjúklinga sem þeir stunda.

Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar hafi óheftan aðgang að gögnum þeirra sjúklinga sem þeir eru með til meðferðar.

Aðrir heilbrigðisstarfsmenn
Heilbrigðisstarfsmenn, aðrir en læknar og hjúkrunarfræðingar, hafi aðeins aðgang að þeim gögnum þeirra sjúklinga sem þeir eru með til meðferðar.

Læknaritarar
Læknaritarar hafi aðeins aðgang að gögnum þeirrar deildar sem þeir starfa fyrir.

Móttökuritarar og annað starfsfólk
Móttökuritarar og annað starfsfólk sem ekki hefur starfsréttindi sem heilbrigðisstarfsmenn skal ekki hafa aðgang að sjúkragögnum. Þessir starfsmenn hafi aðeins aðgang að upplýsingum vegna tímapantana, komuskráningar og reikningagerðar.

Starfsmenn þjónustuaðila
Þeir starfsmenn sem sinna þjónustu við tölvu- og upplýsingakerfi á heilbrigðisstofnunum skulu undirrita trúnaðaryfirlýsingu á sama hátt og starfsmenn heilbrigðisstofnana. Þeir skulu ekki hafa aðgang að sjúkragögnum.

Þessar upplýsingar voru fyrst settar á vef Landlæknisembættisins í apríl 2000. Endurskoðað í september 2001.

Uppfært 30. desember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli