Bólusetningar fullorðinna

Almenna reglan er sú að séu liðin meira en 10 ár frá barnabólusetningum gegn stífkrampa og barnaveiki skal gefa örvunarskammt ef hætta er á sýkingu af völdum þessara sjúkdóma eða ef viðkomandi ferðast til svæða þar sem þessir sjúkdómar eru landlægir. Ekki er ástæða til þess að endurtaka aðrar  barnabólusetningar hjá fullorðnum nema þeir séu í sérstakri áhættu.   

Bólusetningar fyrir fullorðna sem mælt er með á Íslandi:


Bólusetningar

 


Hve oft?

 


Hverjir?

Inflúensa

Árlega

Allir eldri en 60 ára sem og börn og fullorðnir, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna-, og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Einnig heilbrigðisstarfsmenn sem annast sjúklinga og þungaðar konur.

 

Lifrarbólga A

Ekki þörf á endurbólu-setningu

Allir þeir, sem hyggja á ferðalög til landa, þar sem sjúkdómurinn er landlægur. Samkynhneigðir karlar. Fíkniefnaneytendur.

 

Lifrarbólga B

Ekki þörf á endurbólu-setningu

Heilbrigðisstarfsfólk, sem vinnur með blóð og blóðhluta, fólk í blóðskilun, fólk er þarf tíðar blóðgjafir, samkynhneigðir karlar, sprautuefnafíklar og fólk í sambýli með sjúklingum með lifrarbólgu B.

 

Mislingar

 

Allir, sem ekki hafa verið bólusettir (reglulegar almennar bólusetningar hófust 1976) og allir, sem ekki hafa með vissu fengið mislinga.

 

Mænusótt

Á 10 ára fresti
(ef hætta er á smiti)

Ef liðin eru meir 10 ár frá síðustu bólusetningu er æskilegt endurtaka hana ef smithætta er fyrir hendi eins og fyrir ferðir til landa þar sem sjúkdómurinn er landlægur.

 

Pneumókokka-sýkingar
(lungnabólgu-bakteríur)

Á 10 ára fresti
(á 5 ára fresti
hjá fólki með
ónæmisbælandi
sjúkdóma)

Allir eldri en 60 ára. Einnig fólk á öllum aldri, sem er án milta vegna sjúkdóms eða slyss, og allir þeir sem þjást af langvinnum lungna-, hjarta-, nýrna-, og lifrarsjúkdómum, sykursýki, áfengissýki, illkynja og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum (þ.m.t. HIV sýkingu).

 

Stífkrampi og
barnaveiki (dT)

Á 10 ára fresti
(ef hætta er á smiti)

Ef liðin eru meir en 10 ár frá síðustu bólusetningu ber að endurtaka hana ef óhreinindi komast í sár eða ef ætlunin er að ferðast til vanþróaðra landa eða til svæða þar sem barnaveiki er landlæg.

 

Uppfært 9. nóvember 2011


 

Bólusetning


  • Bólusetningar koma í veg fyrir útbreiðslu alvarlegra smitsjúkdóma.
  • Alvarlegar aukaverkanir bólusetninga eru mjög fátíðar.





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli