Úrsagnir

Lífsýnasöfn
Lög um lífsýnasöfn, nr. 110,  voru samþykkt á Alþingi 25. maí 2000. Samkvæmt reglugerð um vörslu og nýtingu lífsýna í lífsýnasöfnum, nr. 134/2001, getur lífsýnisgjafi hvenær sem er afturkallað samþykki sitt fyrir því að lífsýni hans, eitt eða fleiri, verði vistuð í lífsýnasafni. Skal lífsýnisgjafi tilkynna landlækni um ósk sína. Í því skyni hefur Landlæknisembættið látið útbúa sérstakt eyðublað fyrir slíkar tilkynningar.

Miðlægur gagnagrunnur á heilbrigðissviði
Þann 17. desember 1989 samþykkti Alþingi lög nr. 139, um gagnagrunn á heilbrigðissviði. Samkvæmt 8. grein laganna getur sjúklingur hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um hann verði ekki fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Slíkt skal  tilkynnast landlækni og hefur hann í þeim tilgangi látið útbúa sérstakt úrsagnareyðublað. Rétt er þó að taka fram að miðlægur gagnagrunnur á heilbrigðissviði hefur aldrei verið starfræktur hjá rekstrarleyfishafa.




Uppfært 3. febrúar 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli