Hjúkrunarfræðingaskrá
Landlæknisembættið heldur skrá yfir hjúkrunarfræðinga. Í skránni eru tilteknar upplýsingar um alla hjúkrunarfræðinga sem hafa leyfi til starfa við hjúkrun á Íslandi. Sérhver hjúkrunarfræðingur fær sitt ákveðna einkvæma auðkennisnúmer sem helst í skránni þó að viðkomandi starfi ekki lengur við hjúkrun.
Upplýsingar í skránni koma að notum eftir atvikum; við eftirlit, til áætlanagerðar og tölfræðilegrar greiningar. Auðkennisnúmer hjúkrunarfræðings má nota við skráningu upplýsinga í rafræn sjúkraskrárkerfi á heilbrigðisstofnunum.
Fyrsta útgáfa af hjúkrunarfræðingaskrá Landlæknisembættisins fór í dreifingu til nokkurra heilbrigðisstofnana í september 2004 og fyrri hluta árs 2005. Allir hjúkrunarfræðingar fengu þá sent auðkennisnúmer sitt samkvæmt skránni; númer sem þeim ber að varðveita og veita engum öðrum vitneskju um.
Við gerð hjúkrunarfræðingaskrárinnar var stuðst við upplýsingar frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Landlæknisembættinu. Skráin er haldin og hún uppfærð hjá Landlæknisembættinu.
Uppfært 29. desember 2011