NCSP

Norræn flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum (NCSP, NOMESCO Classification of Surgical Procedures) er samnorrænt flokkunarkerfi sem byggir á hefðum í skurðlækningum á Norðurlöndunum. Kerfið er gefið út af Norræna heilbrigðistölfræðiráðinu, NOMESCO.

Flokkunarkerfið samanstendur af 15 aðalköflum skurðaðgerða, sem raðað er eftir starfrænni líffærafræði líkamans, fjórum aukaköflum sem innihalda aðferðir til rannsókna og meðferðar í tengslum við skurðaðgerðir, og loks einum kafla með viðbótarlýsingum, sem eiga við hina kaflana. NCSP-kóðarnir samanstanda af þremur bókstöfum og tveimur tölustöfum.

 

NCSP flokkunarkerfið hefur verið í notkun á Íslandi síðan 1997 og inniheldur svokallaða V-kóða, en þeir eru íslenskir viðaukakóðar sem m.a. eru notaðir til að lýsa hjartaþræðingum o.fl. NCSP kerfið er endurskoðað árlega en þýðingum og leiðréttingum er bætt inn oftar.


 

  NCSP. Um uppfærslu 2011

 

NCSP flokkunarkerfið, sem verið hefur í notkun á Íslandi, er þýðing enskrar útgáfu kerfisins, en hún er sameiginleg grunnútgáfa flokkunarkerfisins fyrir öll Norðurlöndin. Enska útgáfu NCSP er að finna í pdf-skjali á heimasíðu Norrænu flokkunarmiðstöðvarinnar, Nordic Centre for Classifications in Health Care. Jafnframt er hægt að kaupa enska útgáfu bókarinnar í gegnum NOMESCO. Íslenska útgáfan er birt á vefnum skafl.is (sjá í ramma hér til hægri).

 


© Nordic Medico-Statistical Committee (NOMESCO) á höfundarrétt á NCSP+ útgáfunni.
Örn Bjarnason á höfundarrétt á íslenskum þýðingum sem notaðar eru úr NCSP.

 

 

Uppfært 7. janúar 2011

NCSP flokkunarkerfið

NCSP flokkunarkerfið

Excel útgáfa:

 

Gagnagrunnsútgáfa (fyrir heilbrigðisstofnanir):


Vefbirting flokkunarkerfa

Vefbirting



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli