ICD-10
Alþjóðleg tölfræðiflokkun sjúkdóma og skyldra heilbrigðisvandamála, 10. endurskoðun (International Statistical Classification of Diseases and Health Related Problems, 10th revision), kallast ICD-10 í daglegu tali. Flokkunarkerfið er gefið út af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) sem heldur sérstakar vefsíður um ICD-10 og reglulegar uppfærslur þess. Uppfærslur hér á landi taka mið af fyrirmælum WHO um gildistöku þeirra.
Flokkunarkerfið samanstendur af 20 aðalköflum og mismörgum undirköflum. Aðalkaflarnir skrá ýmist sjúkdómsgreiningar sem tengjast ákveðnum líffærakerfum, eftir tegund sjúkdóms eða orsök hans (svo sem smitsjúkdómar og krabbamein). Enn aðrir skrá tilvik vegna ytri orsaka, svo sem slysa.
ICD-10 er notað við skráningu sjúkdómsgreininga og hefur verið birt á bókarformi á ensku og íslensku og í rafrænni umgjörð bæði til vefbirtingar (sjá vísan á skafl.is í ramma hér til hægri) og til notkunar í hugbúnaðarkerfum heilbrigðisstofnana.
Orðanefnd læknafélaganna á höfundarrétt að íslenskri þýðingu sem unnin var 1996.
Uppfært 8. mars 2010
ICD-10 flokkunarkerfið
Excel útgáfa
Með skýringartextum á ensku og íslensku
(Á ensku enn sem komið er)
Gagnagrunnsútgáfa (fyrir heilbrigðisstofnanir)