Flokkunarkerfi

Öll skráning í íslenskri heilbrigðisþjónustu byggir á aðgengilegum og viðeigandi flokkunarkerfum, leiðbeiningum um notkun þeirra við skráningu og eftirliti með henni.

Allir heilbrigðisstarfsmenn sem skrá upplýsingar í sjúkraskrá eiga að nýta til þess a.m.k. þau kóðuðu flokkunarkerfi sem landlæknir hefur mælt fyrir um notkun á.  Til þessa hóps heilbrigðisstarfsmanna teljast allir læknar, allir hjúkrunarfræðingar og læknaritarar. Ýmsar aðrar stéttir hafa þörf fyrir kóðuð flokkunarkerfi við sína skráningu, s.s. sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar. 

Allar stofnanir heilbrigðisþjónustunnar eiga að sjá til þess að sjúkragögn séu skráð og að við skráningu séu notuð þau kóðuðu flokkunarkerfi sem landlæknir hefur mælt fyrir um notkun á.

Allur hugbúnaður sem notaður er við skráningu heilbrigðisupplýsinga þarf að veita aðgang að gildandi útgáfum af viðeigandi flokkunarkerfum.

Vefurinn www.skafl.is birtir gildandi útgáfur flokkunarkerfa Landlæknisembættisins.

ICD-10. Allar sjúkdómsgreiningar skulu skráðar í samræmi við Alþjóðlegt flokkunarkerfi sjúkdóma og skyldra heilbrigðisvandamála, (International Classification of Diseases and Related Conditions, Rev. 10).

NCSP.  Aðgerðir lækna skulu skráðar eftir Norrænni flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum, (NOMESCO Classification of Surgical Procedures).

NCSP-IS (=NCSP+).   Heimilt  er að nota sérstaka landsútgáfu af aðferða- og aðgerðaflokkunarkerfinu þar sem starfsemi kallar á sérhæfðari skráningu en hún er einnig ítarlegri.

NANDA og NIC.  Samkvæmt tilmælum landlæknis skal við skráningu hjúkrunargreininga og meðferðar beita greiningar- og meðferðarflokkunarkerfunum NANDA og NIC (Nursing Intervention Classification). Flokkunarkerfin eru ekki aðgengileg á þessum vef sem stendur.

ICF.  Þýðing flokkunarkerfisins  (International Classification og Functioning, Disability and Health) til skráningar á heilsutengdri færni er  langt komin og er stefnt að útgáfu þess fyrir lok árs 2009.

Landlæknisembættið annast þýðingar, þróun, uppfærslur og útgáfu þessara flokkunarkerfa í samráði við erlenda ábyrgðaraðila og innlenda notendur þeirra.

Önnur flokkunarkerfi eru einnig í notkun hér. Öll ávísun lyfja er skráð eftir ATC flokkunarkerfi lyfja (Anatomical-Therapeutical-Chemical Classification) sem Lyfjastofnun heldur skrá um. Aðrar eldri skrár vegna skráningar tilefna, rannsókna og annarra úrlausna en lyfja eða aðgerða sem eru að finna í hugbúnaði einstakra stofnana hafa ekki verið gefnar út rafrænt á vegum Landlæknisembættisins.

Fyrirspurnir vegna flokkunarkerfa má senda með tölvupósti til verkefnisstjóra.

 


    Uppfært 18. febrúar 2010

Skylt efni

Skylt efni

Vefbirting flokkunarkerfa

Vefbirting



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli