Bólusetningar ung- og smábarna

Fyrirkomulag barnabólusetninga á Íslandi eftir 1. mars 2010

 Aldur:  Bólusetning gegn:  Bóluefni:

 3 mánaða  

Kikhósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu.
Pneumokokkum í annarri sprautu.
Infanrix Polio Hib
Synflorix
 5 mánaða  Kikhósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu.
Pneumokokkum í annarri sprautu.
Infanrix Polio Hib
Synflorix
 6 mánaða Meningókokkum C. Neisvac-C
 8 mánaða Meningókokkum C. Neisvac-C
 12 mánaða Kikhósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu.
Pneumokokkum í annarri sprautu.
Infanrix Polio Hib
Synflorix
 18 mánaða    Mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu. Priorix
 4 ára     Barnaveiki, stífkrampa og kikhósta í einni sprautu. Boostrix
 12 ára    Mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu. Priorix
 14 ára Barnaveiki, stífkrampa og kikhósta ásamt mænusótt einni sprautu. Boostrix Polio

Grunnbólusetning gegn kikhósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi (gerð b) og mænusótt felst í 3 bólusetningum, við 3ja, 5 og 12 mánaða aldur og á sama aldri gegn pneumokokkum í annarri sprautu. Til að styrkja vörnina er bólusett við barnaveiki, stífkrampa og kikhósta við 4 ára aldur og við 14 ára aldur er endurtekin bólusetning gegn barnaveiki, stífkrampa, kikhósta og mænusótt. Eftir það er ráðlagt að viðhalda vörnum með endurbólusetningu á 10 ára fresti, að minnsta kosti ef verið er að ferðast til landa þar sem viðkomandi sjúkdómar eru landlægir.

Grunnbólusetning við mislingum, hettusótt og rauðum hundum er gefin við 18 mánaða aldur en örvunarskammtur er gefinn við 12 ára aldur og eiga einstaklingar þá að vera varðir ævilangt gegn þessum sjúkdómum.

Sjá meira undir Sóttvarnir:

Bólusetningar barna
Aukaverkanir
Eru bólusetningar hættulegar?
Leiðbeiningar um bólusetningar fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Um einstaka smitsjúkdóma sem bólusett er gegn:
Smitsjúkdómar A-Ö

Síðast breytt / uppfært 12. apríl 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli