Næring og hreyfing

Góð næring og hæfileg hreyfing eru nauðsynleg undirstaða heilbrigðs lífs. Ýmis heilsufarsvandamál má rekja til rangs mataræðis eða ónógrar hreyfingar. Ennfremur er offita vaxandi vandamál hér á landi sem og meðal annarra vestrænna þjóða.

Landæknisembættið telur brýnt að hvetja til heilsusamlegs mataræðis og að fólk á öllum aldri hreyfi sig reglulega. Embættið leitast við að sinna þessu málefni í samvinnu við aðra aðila. Meðal annars átti embættið fulltrúa í faghópi Lýðheilsustöðvar sem vann að útgáfu fræðsluritsins Ráðleggingar um hreyfingu sem kom út 2008. 


Nýtt:
Ekki gleyma D-vítamíninu - þú færð ekki nóg úr matnum (PDF) Grein eftir dr. Laufeyju Steingrímsdóttur, birt í október 2001. Greinin er birt með leyfi höfundar.

Skylt efni á vef fyrrum Lýðheilsustöðvar: Næring og holdafar

Útgáfa og annað efni á þessum vef:
Hreyfðu þig - njóttu lífsins (pdf 1545 KB)
Bæklingur frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, gefinn út í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Apríl 2002

Margvíslegar greinar um þetta efni er að finna undir Hollráð um heilsuna: 
Hreyfing - mataræði - þyngdin

Aðrir vefir:
Hjartavernd
ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands 
UMFÍ - Ungmennafélag Íslands 

Uppfært 14. október 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli