Heilsuefling
Heilsuefling miðar að því að hafa áhrif á lífsstíl fólks og gera því kleift að lifa heilsusamlegu lífi við heilnæmar aðstæður. Með heilsueflingu er leitast við að efla heilbrigði með því að skapa fólki félagslegar, menningarlegar og efnahagslegar aðstæður og umhverfi sem gera einstaklingum og samfélaginu kleift að auka hreysti og efla vitund og vilja til að viðhalda heilbrigði.
Heilsuefling hefst hjá þér hófst sem samstarfverkefni Landlæknisembættisins og heilbrigðisráðuneytisins árið 1993. Markmiðið var að efla heilsu og vellíðan landsmanna. Verkefnið byggði á íslensku heilbrigðisáætluninni og tók mið af markmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um Heilsu 21.
Heilsuefling hefst hjá þér sinnti ráðgjöf til stjórnvalda, rannsóknum á sviði heilsueflingar, vann með fagaðilum að verkefnum sem miðuðu að bættri heilsu og vellíðan og miðlaði fræðslu til almennings um ýmis heilbrigðismál.
Eitt af þróunarverkefnunum var Heilsuefling í skólum og var það unnið í samstarfi við menntamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið. Gefnir voru út þrír bæklingar á vegum þess verkefnis, Viðmið heilsuframhaldsskóla, Viðmið heilsugrunnskóla og Viðmið heilsuleikskóla.
Á vegum Landlæknisembættisins er starfrækt fagráð um heilsueflingu til þess að vinna að ofangreindum markmiðum. Fagráðið hefur m.a. samið skýrsluna Áherslur til heilsueflingar.
Með tilkomu Lýðheilsustöðvar hafa þau verkefni sem Landlæknisembættið sinnti á sviði heilsueflingar færst til stöðvarinnar. Sjá meira um heilsueflingu á vef Lýðheilsustöðvar.
Uppfært 17. febrúar 2009