Sjálfsvígsforvarnir


Starfrækt er sérstakt fagráð á vegum Landlæknisembættisins sem sinnir þunglyndis- og sjálfsvígsforvörnum. Í desember 1999 var ýtt úr vör verkefni með það markmið að efla forvarnir gegn sjálfsvígum og sjálfsvígstilraunum. Þriggja manna vinnuhópur, skipaður Högna Óskarssyni, Sigurði Páli Pálssyni og Wilhelm Norðfjörð, vann að undirbúningii verkefnisins og haldnar voru tvær ráðstefnur um málið í mars og júní árið 2000. Fjórir starfshópar og tíu manna stýrihópur útfærðu síðan tillögur um forvarnir gegn sjálfvígum. Verkefnisstjóri var ráðinn í ársbyrjun 2002 til að hafa umsjón með verkefninu.


Brátt varð ljóst að nauðsynlegt yrði að leggja einnig áherslu á forvarnir gegn þunglyndi sem eins stærsta áhættuþáttar sjálfsvíga. Í ljósi þess varð til verkefnið Þjóð gegn þunglyndi sem hóf göngu sína í byrjun árs 2003.

Meira um Þjóð gegn þunglyndi: www.thunglyndi.landlaeknir.is


Fagráð um forvarnir gegn þunglyndi og sjálfsvígum:

Högni Óskarsson geðlæknir, formaður
Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur, verkefnisstjóri

Aðrir í ráðinu:
Ágústa Ingþórsdóttir námsráðgjafi, Borgarholtsskóla.
María Ólafsdóttir heilsugæslulæknir
Óttar Guðmundsson geðlæknir, LSH
Sigurður Páll Pálsson geðlæknir, LSH
Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur, Reykjavík


Uppfært 3. mars 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli