Geðvernd
Geðvernd miðar að því að efla geðheilsu og draga úr geðheilsuvanda og afleiðingum geðsjúkdóma. Landlæknisembættið vinnur að margvíslegum verkefnum á sviði geðverndar í samvinnu við ýmsa aðra.
Þjóð gegn þunglyndi.
Fræðslu- og forvarnaverkefni á vegum Landlæknisembættisins sem hófst 2003 og er unnið í náinni samvinnu við heilsugæslustöðvar, félagsþjónustu sveitarfélaganna, skóla, kirkjuna og lögreglu. Verkefnið nýtur stuðnings heilbrigðisráðuneytisins.
Meginmarkmið verkefnisins er að draga úr þjáningum vegna þunglyndis og draga úr öðrum beinum og óbeinum afleiðingum þunglyndis, þ.m.t. ótímabærum dauðsföllum.
Geðrækt
Geðrækt hófst sem samstarfsverkefni Landlæknisembættisins, Geðhjálpar og geðsviðs Landspítala-háskólasjúkrahúss og Heilsugæslu Reykjavíkur. Verkefninu var ýtt úr vör á alþjóðageðheilbrigðisdeginum, 10. október 2000. Verkefnið heyrir nú undir Lýðheilsustöð.
Meginmarkmið verkefnisins er að efla meðvitund einstaklinga, fjölskyldna, félaga og fyrirtækja um geðheilbrigði. Með Geðrækt er lögð áhersla að hlúa að því sem heilt er og fyrirbyggja með því geðraskanir á borð við kvíða og þunglyndi.
1717 - Hjálparsími Rauða krossins
Fulltrúar Rauða kross Íslands, Landlæknisembættisins, Neyðarlínunnar og geðsviðs Landspítala háskólasjúkrahúss hafa gert samkomulag um aðkomu þessara aðila að rekstri Hjálparsímans.
Síminn er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda vegna depurðar, kvíða, þunglyndis eða sjálfsvígshugsana.
![]()
Útgáfa
Áfallahjálp á landsvísu (pdf, 637 kb)
Skýrsla frá vinnuþingi sem haldið var í apríl 2005.
Gefið út í samvinnu Rauða kross Íslands, Landlæknisembættisins, Landsspítala - háskólasjúkrahúss, Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjórans og Biskupsstofu.
Nóvember 2005.
Að koma í veg fyrir sjálfsvíg og sjálfsvígstilraunir meðal unglinga.
Upplýsingarit Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar ætlað kennurum og öðru starfsfólki í skólum. (pdf, 567 kb)
Þjóð gegn þunglyndi. Vefútgáfa. 10. september 2004.
Þunglyndi getur lagst á alla (pdf)
Bæklingur gefinn út í tengslum við verkefnið Þjóð gegn þunglyndi. Júní 2003.
Skýrsla um sjálfsvíg og sjálfsvígstilraunir meðal íslenskra ungmenna:
Sjálfsvígstilraunir meðal íslenskra framhaldsskólanema árin 1992 og 2000 og alþjóðlegur samanburður á sjálfsvígstíðni meðal 15-24 ára ungmenna 1951-2000. (pdf, 514 KB)
Unnið af Þóroddi Bjarnasyni, Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur og Ingu Dóru Sigfúsdóttur hjá Rannsóknum og greiningu. 2002.
Forvarnir gegn sjálfsvígum. Greinargerð og tillögur starfshóps landlæknisembættisins, apríl 2001. (pdf)
Sjálfsvíg ungs fólks á Íslandi: samanburður á sjálfsvígum á Austurlandi
og höfuðborgarsvæði 1984-1991 (pdf)
Skýrsla unnin af Wilhelm Norðfjörð. 2001
Börn og ungmenni með geðræn vandamál: þjónusta utan sjúkrastofnana. (pdf. 125 KB)
Skýrsla starfshóps landlæknis. 2000.
Annað efni á þessum vef:
Ýmsar greinar um efnið er að finna undir Hollráð um heilsuna: Geðheilsa
Aðrir vefir:
Síðast breytt/uppfært 13. október 2010