Siðareglur sjúkraþjálfara

Hlutverk sjúkraþjálfara
Hlutverk sjúkraþjálfara er að greina og meðhöndla truflun á hreyfingum líkamans, vinna að því  að  efla og viðhalda líkamlegu sem andlegu atgervi skjólstæðinga sinna og draga úr og koma í veg fyrir vanlíðan.

Sjúkraþjálfari og skjólstæðingur
Sjúkraþjálfari skal vinna fordómalaust og án þess að fara í manngreinarálit. Hann virðir mannhelgi skjólstæðings síns og sjálfsákvörðunarrétt.

Sjúkraþjálfari ber hag skjólstæðings fyrir brjósti og leitast við að veita bestu sjúkraþjálfun sem kostur er á. Hann vísar skjólstæðingi annað, telji hann hag hans betur borgið á þann hátt.

Sjúkraþjálfari veitir skjólstæðingi upplýsingar um meðferðarúrræði og um hvaðeina sem varðar viðskipti þeirra. Hann skal kynna sér þau réttindi skjólstæðings sem meðferðinni tengjast.
 
Sjúkraþjálfari virðir þagnarskyldu og sýnir skjólstæðingum, aðstandendum þeirra og öðrum viðskiptavinum fullan trúnað í hvívetna.

Sjúkraþjálfari, starfið, menntun
Sjúkraþjálfari virðir þá ábyrgð og þau takmörk sem starfinu og menntun hans fylgja.

Sjúkraþjálfari viðheldur þekkingu sinni og starfsfærni. Hann stuðlar að þróun í sjúkraþjálfun og tileinkar sér nýjungar sem að gagni koma á hans starfsvettvangi.

Sjúkraþjálfari skal vera vandur að virðingu sinni. Hann hefur hugfast að orðspor stéttarinnar byggir á sérhverjum einstaklingi innan hennar.

Sjúkraþjálfari og samstarfsfólk
Sjúkraþjálfari virðir störf annarra heilbrigðisstétta. Hann starfar af heilindum með samstarfsfólki og öðrum heilbrigðisstéttum með velferð skjólstæðinga að leiðarljósi.

Sjúkraþjálfari miðlar af þekkingu sinni og reynslu til samstarfsfólks, nemenda í sjúkraþjálfun og annarra sjúkraþjálfara.

Sjúkraþjálfari gerir viðvart ef hann telur að samstarfsmaður vinni gegn hagsmunum skjólstæðings.

Telji sjúkraþjálfari að annar sjúkraþjálfari brjóti gegn siðareglum þessum eða þeim lögum sem um stéttina gilda skal hann koma ábendingu um það á framfæri við viðeigandi aðila.

Sjúkraþjálfari og samfélag
Sjúkraþjálfara ber að efla og bæta sjúkraþjálfun í þágu samfélagsins. Hann nýtir menntun sína og þekkingu þar sem hann telur að hún megi að gagni koma.

Sjúkraþjálfari skal taka þátt í stefnumótun innan heilbrigðisþjónustunnar.

Sjúkraþjálfara er heimilt að auglýsa starfsemi sína á málefnalegan og látlausan hátt. Hann skal á engan hátt gefa í skyn faglega yfirburði sína umfram aðra sjúkraþjálfara í auglýsingum, greinum eða viðtölum í fjölmiðlum.

Umfjöllun sjúkraþjálfara um vöru og þjónustu skal vera fagleg. Hann skal forðast að halda fram yfirburðum einnar vöru eða þjónustu umfram aðrar.

Siðareglur þessar byggja á:
Lögum um lækna nr. 53/1988
Lögum um sjúkraþjálfun nr. 58/1976
Alþjóðareglum sjúkraþjálfara WCPT

Unnið af nefnd sem skipuð var á aðalfundi FÍSÞ til að endurskoða siðareglur félagsins.

Uppfært  4. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli