Siðareglur heilbrigðisstétta
Margar heilbrigðisstarfstéttir hafa mótað og skráð faglegar siðareglur. Meginhlutverk siðareglna er að leiðbeina starfstéttum til þess að þær geti þjónað sem best réttmætu og þörfu hlutverki sínu í samfélaginu.
Siðareglur eiga að auðvelda einstökum starfsmönnum ákvarðanatöku í siðferðilegum álitamálum og jafnframt vera lýsandi fyrir faglega ábyrgð.
Siðareglur eiga að sýna fram á siðferðilegar skyldur faghópsins sem heildar. Þær eiga að vera lýsandi fyrir samskipti fagfólks við sjúklinga sína og lýsa ábyrgð gagnvart þeim.
Flestar siðareglur hafa einnig viðmiðunareglur eða leiðbeiningar fyrir fagfólk um hvernig það megi koma fram í samfélaginu gagnvart almenningi, þar á meðal í fjölmiðlum.
Uppfært 14. janúar 2011