Öryggi heilbrigðisstétta
Ofbeldi gagnvart starfsfólki heilbrigðisstofnana er staðreynd. Könnun, sem gerð var árið 1996 og unnin var fyrir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Starfsmannafélagið Sókn og Starfsmannafélag Ríkisstofnana, sýndi óyggjandi að svo er.
Starf á heilbrigðisstofnunum krefst náinna samskipta heilbrigðisstarfsfólks við einstaklinga með ýmis líkamleg, andleg og félagsleg vandamál. Oft eiga þessi samskipti sér stað við aðstæður sem ekki eru ánægjulegar eða ákjósanlegar fyrir sjúklinga og skjólstæðinga viðkomandi stofnunar og starfsfólks hennar. Við erfiðar aðstæður reynir á samskiptahæfni starfsmanna. Þá er mikilvægt að starfsmaðurinn hafi yfir að ráða kunnáttu til að bregðast við á faglegan hátt.´
Sjá meira um skylt efni í skýrslu vinnuhóps frá Læknafélagi Íslands, Landlæknisembættinu, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Vinnueftirlitinu sem út kom í október 2007.
Skýrsla vinnuhóps um ógnanir gegn heilbrigðisstarfsfólki (PDF)
Sjá enn fremur tillögur nefndar á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem gefnar voru út í febrúar 2002:
Ofbeldi gagnvart starfsfólki meðferðar- og heilbrigðisstofnana - Tillögur nefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um forvarnir og viðbrögð. (PDF)
Síðast breytt/uppfært 24. september 2010