RAI mat

RAI er mælitæki sem notað er til að meta hjúkrunarþarfir og heilsufar íbúa á öldrunarstofnunum. RAI er skammstöfun á enska heitinu Resident Assessment Instrument, sem á íslensku hefur verið nefnt Raunverulegur aðbúnaður íbúa.

RAI-mælitækið er fjölþjóðlegt tæki sem þróað var í Bandaríkjunum á níunda áratug síðustu aldar í því skyni að jafna gæði þeirrar þjónustu sem veitt er á hjúkrunarheimilum aldraðra. Mælitækið hefur verið þýtt og staðfært víða um heim í fjölþjóðlegu samstarfi sem nefnist inter-RAI. (Sjá vefsetrin www.interrai.org og www.nordrai.org ).

Í júní 2008 setti heilbrigðisráðherra nýja  reglugerð, nr. 544/2008, um mat á heilsufari og aðbúnaðir íbúa í hjúkrunarrýmum.  Markmiðið með reglugerð þessari er að tryggja að þjónusta við aldraða á öldrunarstofnunum sé í samræmi við lög um málefni aldraðra (nr. 125/1999).

 
Meta skal heilsufar og hjúkrunarþörf íbúa sem dvelja í hjúkrunarrýmum þrisvar sinnum á ári, en íbúar sem dvelja í dvalarrýmum skulu metnir einu sinni á ári.

Landlæknisembættið á samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu að hafa eftirlit með og tryggja gæði þjónustunnar. Verkefnisstjóri RAI-mats starfar hjá embættinu og ber faglega ábyrgð á eftirliti með RAI-mati og leiðbeinir um notkun þess. Hann leggur faglegt mat á áreiðanleika RAI-mælinganna, metur gæði umönnunar, framkvæmir mat að beiðni heilbrigðismálaráðuneytisins og/eða stofnana og vinnur að þróun mælitækisins í samvinnu við RAI-matsnefnd ráðuneytisins.


RAI-mat sem mælitæki
Mælitækið er samsett  úr fimm þáttum og er RAI í raun samheiti yfir þessa þætti. Þeir eru:

  • gagnasafn
  • gæðavísar 
  • matslyklar
  • álagsmælingar
  • þyngdarstuðull
  • Gagnasafn
    Sá hluti mælitækisins sem aðrir þættir þess byggjast á hefur á íslensku verið nefndur Gagnasafn um heilsufar og hjúkrunarþarfir íbúa á öldrunarstofnunum. Gagnasafnið hefur að geyma um það bil 400 atriði sem lýsa heilsufari og hjúkrunarþörfum íbúa á öldrunarstofnunum. Hjúkrunarfræðingur, sem lært hefur hvernig meta skal samkvæmt gagnasafninu og að skrá í það, er ábyrgur fyrir skráningu RAI-mats.

    Upplýsingarnar sem fást úr gagnasafninu má nota við skipulagningu umönnunar og gerð hjúkrunaráætlunar fyrir hvern íbúa. Tölulegar upplýsingar eru teknar saman um hverja deild og hverja stofnun og til viðmiðunar eru meðaltalstölur fyrir landið í heild. Út frá upplýsingum sem safnað er á þennan hátt er hægt að skoða aðra þætti mælitækisins.

    Gæðavísar
    Einn af mikilvægum þáttum RAI-mælitækisins eru gæðavísar sem voru þróaðir til að hægt væri að tryggja ákveðin gæði umönnunar og til notkunar við umbótastarf. Gæðavísarnir eru 30 atriði sem eru vísbendingar um gæði hjúkrunar og umönnunar á öldrunarheimilum.

    Gæðavísar gefa starfsfólki og stjórnendum á stofnunum vísbendingar um það sem vel er gert eða það sem betur má fara. Ýmist er verið að athuga tíðni/algengi eða tilkomu/nýkomu þessara atriða. Gæðavísa má nota þegar mæla á árangur þjónustu og setja af stað umbótaverkefni. Gæðavísar eru einnig mikilvægur þáttur í þjónustusamningum við stofnanir. Þeir eru mælikvarði á þá þjónustu sem verið er að greiða fyrir.

    Matslyklar
    Matslyklar eru eins konar staðlar eða leiðbeiningar um meðferð á helstu heilsufarsvandamálum aldraðra. Matslyklar gefa til kynna hvaða heilsufarsvandamál íbúinn á við að glíma og/eða mögulega áhættuþætti. Þeir tilgreina hvaða þætti þarf að afla betri upplýsinga um og í sumum tilfellum er komið með tillögur að meðferð. Matslykla má nota sem hjálpartæki þegar gerðar eru hjúkrunaráætlanir fyrir íbúa.

    Álagsmælingar
    Álagsmælingar eru gerðar með hjálp RUG-III flokkunarkerfisins, sem er einn þáttur RAI- mælitækisins,. Flokkunarkerfið var sérstaklega hannað til að nýta sem hluta af greiðslukerfi til hjúkrunarheimila. Hugmyndafræðin, sem liggur til grundvallar kerfinu, er sú, að greiða hjúkrunarheimilum í samræmi við umönnunarþörf íbúanna.

    Þyngdarstuðull
    Þyngdarstuðull er reiknaður út frá RUG-flokkun og gefur til kynna hlutfallslegan kostnað við umönnun íbúa eftir því í hvaða flokki þeir lenda.

    Tölvuskráning
    Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á tölvuvæðingu kerfisins. Árið 2001 gerði heilbrigðismálaráðuneytið samning við verkfræðistofuna Stika ehf. um rekstur og hýsingu gagnagrunna vegna RAI-mats og vistunarmats aldraðra. Samningurinn felur í sér að öll hjúkrunarheimili á landinu tengjast þessum gagnagrunnum með öruggum fjartengingum og öll matsgögn fara í miðlægan gagnagrunn. Til að tryggja gagnaöryggi og persónuvernd eru gögnin dulkóðuð í tölvusamskiptum. Með því að safna gögnunum í miðlægan gagnagrunn er hægt að fá heildarmynd af heilsufari og aðbúnaði aldraðra á öllum öldrunarstofnunum á landinu. Hver stofnun hefur aðeins aðgang að sínum gögnum.

    Notagildi RAI mats
    Notagildi RAI mats er ótvírætt, það bætir árangur umönnunar og hjúkrunar og þar með ánægju og vellíðan íbúa og aðstandenda. RAI mælingar gera stjórnendum kleift að meta gæði þjónustunnar og hafa eftirlit með henni og meta kostnað við umönnun íbúanna.

    Verkefnisstjóri RAI-mats hjá Landlæknisembættinur er Sigríður Egilsdóttir hjúkrunarfræðingur.

    Uppfært 24. apríl 2009




    Aukaval


    Leturstærðir


    Leit

    Leitarvél
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli