Eftirlit með heilbrigðisstofnunum
Landlækni ber að hafa faglegt eftirlit með öllum heilbrigðisstofnunum samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og lögum um landlækni nr. 41/2007 . Þeir sem hyggjast hefja rekstur í heilbrigðisþjónustu skulu tilkynna það til landlæknis.
| |
-
Upplýsingum sem fyrir liggja um stofnunina hjá Landlæknisembættinu.
-
Upplýsingum frá stjórnendum stofnunarinnar um starfsemi og starfsmannamál.
-
Viðhorfum starfsmanna á stofnuninni sem embættið leitar til með spurningalistum.
-
Þjónustukönnun sem gerð er meðal þeirra sem fá þjónustu á stofnuninni.
Auk þessa skipulega eftirlits heimsækir Landlæknisembættið stofnanir til að leggja mat á sérstaka þætti í starfsemi þeirra vegna ábendinga, óska um úttekt á gæðum eða ef alvarleg atvik hafa átt sér stað.
Grunnur hefur verið lagður að eftirliti með sjálfstætt starfandi sérfræðingum.
Sjá einnig: Eftirlit Landlæknisembættisins með heilbrigðisþjónustu. Greinargerð, desember 2009
Uppfært 1. júní 2011