Um vefsetrið

Markmið
Vefsetrið www.landlaeknir.is er starfrækt til þess að miðla upplýsingum og leiðbeiningum í samræmi við hlutverk Landlæknisembættisins og koma á framfæri tilkynningum um heilsuvernd og varnir gegn sjúkdómum. Vefurinn er mikilvægur farvegur fyrir upplýsingar frá embættinu.

Fyrir hverja er vefurinn?
Vefnum er ætlað að þjóna starfsfólki í heilbrigðisþjónustu auk þess að koma til móts við þarfir heilbrigðisstofnana, stjórnvalda og almennings.

Leitast er við að allt efni vefsins sé aðgengilegt og auðvelt að finna, annaðhvort í valmyndum eða með leit (fyrir ofan vinstri valmynd). Einnig er lögð áhersla á að efnið sé á skýru og greinargóðu máli.

Skjöl á vefnum eru uppfærð jöfnum höndum og sést dagsetning vefsetningar, síðustu uppfærslu, yfirferðar eða breytingar til hægri undir hverju skjali. Markmiðið er að allar vefsíður séu yfirfarnar að minnsta kosti einu sinni á ári.

Til þess að vefurinn geti orðið enn betri miðill er mikilvægt að gestir á vefsetrinu komi sjónarmiðum sínum til skila. Því eru allar ábendingar um það sem betur má fara vel þegnar. Hafir þú einhverjar spurningar varðandi vefinn eða athugasemdir um efni hans er þér velkomið að senda tölvupóst til vefstjóra.

Myndir
Ljósmyndir á vefnum er fengnar víða að. Þær sem ekki eru teknar hjá Landlæknisembættinu eru margar frá Getty Images Inc., fengnar af DVD diski. Einnig er nokkur fjöldi mynda sem birtur er með góðfúslegu leyfi Landspitala. Ljósmyndarar þeirra mynda eru Þórdís Erla Ágústsdóttir og Inger Helene Bóasson. Mynd af Nesstofu á forsíðu vefsins tók Sigurþór Hólm Tryggvason.

Tæknihliðin
Vafrar: Hægt er að skoða vefinn í Internet Explorer 6.0+ og nýrri útgáfum. Hann er einnig prófaður fyrir Mozilla Firefox.
Skjáupplausn: Lágmarksupplausn er 1020 x 76 skjápunktar (pixlar).
Vefurinn er unninn í vefumsýsluforritinu LISA.net hjá Skýrr hf og er hann jafnframt hýstur hjá Skýrr hf.

Vefstjóri er Jónína Margrét Guðnadóttir.

 Uppfært 22. febrúar 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli