Námskeið
Þjóð gegn þunglyndi stendur fyrir námskeiðum um sjálfsvígsforvarnir og þunglyndi fyrir svonefnda lykilhópa verkefnisins, þ.e. starfsfólk í heilsugæslu, skólum, félagsþjónustu sveitarfélaga, lögreglu og Þjóðkirkjunni.
Á fyrsta starfsári verkefnisins ferðuðust aðstandendur þess víða um land og efndu til dagsnámskeiða með fagfólki úr ofangreindum hópum í flestum heilsugæsluumdæmum landsins og árið 2004 stóðu þeir fyrir 36 dagsnámskeiðum og 32 styttri fræðslufundum. Auk þess hafa verið haldnir fræðslufundir og námskeið í samvinnu við Rauða kross Íslands fyrir fagfólk og sjálfboðaliða Rauða krossins.
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast Power-point glærur með meginefni fræðsluerinda sem haldin eru með svipuðu sniði á lengri námskeiðunum.
Þunglyndi - Yfirlit
Yfirlitserindi um þunglyndi og verkefnið Þjóð gegn þunglyndi.
Þunglyndi - Greining og meðferð
Sjálfsvígsatferli, þunglyndi og áhættumat
Tíðni sjálfsvíga á Íslandi
Uppfært 7. janúar 2009