Sjálfshjálparhópar
Mörgum reynist erfitt að sjá fram á að einhver breyting geti orðið á þeirra högum og festast þannig í gildru depurðar og einmanaleika. Þeim sem eiga við geðraskanir að stríða hættir til að einangrast. Þeir eiga erfitt með að vera innan um aðra, kvíði og framtaksleysi hamla og tilfinningin um að vera minni máttar er þá skammt undan.
Margir detta út af vinnumarkaði tímabundið, en það grefur enn frekar undan eðlilegu sjálfstrausti, dagarnir verða tómlegir og hverjir öðrum líkir.
Til eru ýmiss konar sjálfshjálparbækur sem eru ætlaðar þeim sem vilja efla sjálfstraust og sjálfsímynd sína. Margar þessara bóka hafa verið þýddar á íslensku og eru auðlesnar. Geta þær komið mörgum að gagni, því þar er að finna góð ráð og leiðsögn.En það eru til fleiri leiðir
Fyrir utan sérfræðiþjónustu ýmiss konar eru til nokkur samtök sem hafa skipulagt sjálfshjálparhópa eða aðstöðu til einfaldlega að koma og deila reynslu sinni með öðrum í svipaðri stöðu eða sem eru að ná sér á strik. Auk þess er starfsfólk á þessum stöðum, sem getur veitt ómældar upplýsingar um hvað sé til ráða. Staðir sem vert er að benda á eru:
Geðhjálp, Túngötu 7, 101 Reykjavík. Sími 570 1700. Þar er veitt fræðsla og skipulagðir eru sjálfshjálparhópa fyrir fólk með geðræna erfiðleika og aðstandendahópar.
Hugarafl, Drápuhlíð 14-16, 105 Reykjavík. Sími 585 2318 og 585 2323.
Hópur einstaklinga sem eiga við geðsjúkdóma að stríða en eru í bata. Markmið hópsins er að bæta geðheilbrigðisþjónustuna með áherslu á notendur hennar.
Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík, sími 520 4600.
Ýmiss konar starfsemi ætluð börnum og ungmennum.
Fjölsmiðjan, Kópavogsbraut 5-7, 200 Kópavogi. Sími 544 4080.
Fjölsmiðjan er vinnustaður þar sem fram fer vinna og nám ætluð ungmennum 16?24 ára. Námið er í tengslum við námsflokkana.
Regnbogabörn, Mjósundi 12, 220 Hafnarfirði Sími 555 0862.
Eru með fræðslu, ráðgjöf og hópstarf fyrir alla aldurshópa sem hafa orðið fyrir í einelti.
Samtökin 78, Laugavegi 3, 4. hæð, 101 Reykjavík. Sími 552 7878.
Samtökin hafa félagsráðgjafa til að aðstoða samkynhneigða og fjölskyldur þeirra. Þar er einnig boðið upp á viðtöl og sjálfshjálparhópa.
Vin, Hverfisgötu 47, 101 Reykjavík. Sími 561 2612, netfang vin@redcross.is
Dvöl, Reynihvammi 43, 200 Kópavogi Sími 554 1260, netfang dvol@li.is
Laut, Þingvallastræti 32, 600 Akureyri. Sími 462 6632, netfang laut@simnet.is
Lækur, Hörðuvöllum 1, 220 Hafnarfirði. Sími 566 8600, netfang ae@redcross.is
AA-samtökin, Tjarnargötu 20, 101 Reykjavík. Sími 551 2010.
Sjálfshjálparsamtök fyrir alkóhólista. AA-fundir og sporafundir eru haldnir út um allt land daglega.
Al-anon, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík. sími 551 9282.
Samtök fyrir aðstandendur alkóhólista. Fundir út um allt land.
Alanó, Héðinshúsinu við Seljaveg, 101 Reykjavík.
Fundir fyrir alkóhólista og aðstandendur.