Fyrir hverja?
Til þess að vinna að markmiðum sínum beinir Þjóð gegn þunglyndi fræðslunni annars vegar til almennings og hins vegar til lykilhópa sem í starfi sínu komast í tengsl við þunglynda og fólk í sjálfsvígshættu.
Lykilhópar:
- Heilsugæslan
Velflestir þeirra sem þjást af þunglyndi leita til heilsugæslunnar eftir hjálp. Meðferð margra fer fram þar. Námskeið fyrir heilsugæslulækna, sjálfstætt starfandi heimilislækna, hjúkrunarfræðinga og aðra heilbrigðisstarfsmenn eru haldin til að bæta færni þeirra í að greina og meðhöndla þunglyndi. Sömuleiðis er lögð áhersla á að greiða fyrir samskiptum við sérfræðistofnanir. - Skólar
Lögð er áhersla á að ná til námsráðgjafa og skólastjórnenda í skólum fyrir efstu bekki grunnskólans og í framhaldsskólum með sömu áherslur og í heilsugæslu. - Félagsþjónusta sveitarfélaganna
Félagsþjónustan sinnir fjölmörgum sem eru líklegir til að þjást af þunglyndi. Má þar nefna auk eldri borgara einstaklinga sem tengjast fjölskylduofbeldi, forræðismálum, barnaverndarmálum og málum sem snerta unglinga í erfiðleikum. Námskeið eru með svipuðu sniði og fyrir heilsugæsluna en sniðin að sérþörfum hópa. - Þjóðkirkjan
Prestar þurfa í starfi sínu að sinna fjölmörgum sem eru í persónulegum erfiðleikum og líklegir til að þjást af þunglyndi. Sömuleiðis þurfa þeir t.d. að sinna fjölskyldum þar sem fjölskyldumeðlimur hefur fyrirfarið sér. Er prestum boðið að taka þátt í námskeiðum með heilsugæslunni í sinni sókn. - Lögreglan
Til lögreglu er oft leitað þegar bráðir erfiðleikar steðja að, t.d. vegna geðraskana og sjálfsvígshættu. Til að styðja lögregluna í þeim verkefnum hefur þeim verið boðið að taka þátt í námskeiðum heilsugæslunnar í sínu umdæmi.
Þessi fræðsla miðar við heilsugæsluumdæmi. Til að styrkja innra starf þar eru þátttakendur úr öllum ofangreindum geirum samfélagsins saman á námskeiðum. Tilgangurinn er að fræða þessa hópa um helstu einkenni þunglyndis og sjálfsvígshegðunar og um meðferðarúrræði. Fræðslan er aðlöguð hverjum markhópi og fer fram:
- á námskeiðum,
- með upplýsingabæklingum
- með myndböndum
- á vefnum
-
með netpósti
Uppfært 7. janúar 2009