Hvernig?

Þjóð gegn þunglyndi fer margvíslegar leiðir til að ná markmiðum sínum, fyrst og fremst með því að fræða almenning og tilteknar starfsstéttir og skilgreina áhættuhópa. Fræðslan er með tvennu móti:

Almenningsfræðsla
Fræðslan til almennings hefur að leiðarljósi að:
 
   -  Miðla þeim skilaboðum að þunglyndi er læknanlegur sjúkdómur.
   -  Upplýsa fólk um hvert sé hægt að leita.
   -  Uppræta fordóma.

Þessum boðskap verður komið á framfæri m.a. með:

    • Upplýsingabæklingnum Þunglyndi getur lagst á alla 
    • Auglýsingum í fjölmiðlum og kvikmyndahúsum
    • Veggspjöldum á fjölförnum stöðum
    • Fundum og uppákomum
    • Neyðarspjöldum 
    • Námskeiðum
    • Myndbandi
    • Þessum upplýsingavef


Skilgreining áhættuhópa
Skilgreina þarf hópa þeirra sem taldir eru líklegri en aðrir til að lenda í sjálfsvígshættu og miðla til þeirra upplýsingum um meðferðarúrræði.

Dæmi um áhættuhópa:

- Ungir fíklar
- Ungmenni sem verða utangarðs eða flosna upp í skóla
- Atvinnulausir miðaldra karlmenn

Meira um áhættuhópa: Hvað veldur þunglyndi?

Uppfært 7. janúar 2009

Þjóð gegn þunglyndi





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli