Forsendur
- Þunglyndi er einn þyngsti og dýrasti sjúkdómurinn á heimsvísu, jafnt í háþróuðum löndum sem í þróunarlöndum.
- Þunglyndi er algengur sjúkdómur; 15-25% einstaklinga geta búist við því að verða þunglyndir einhvern tíma á ævinni.
- Þunglyndi byrjar snemma á ævinni, mjög oft á bilinu 18-30 ára.
- Þunglyndi tengist mjög oft kvíðaröskunum og áfengissýki.
- Þunglyndi fylgir oft langvinnum líkamlegum sjúkdómum.
- Þunglyndi birtist stundum sem safn líkamlegra einkenna.
- Þunglyndi er oft flókið í greiningu, ekki síst vegna þess að einstaklingurinn sjálfur áttar sig oft ekki á því að vanlíðan hans/hennar og andlegt og líkamlegt þróttleysi geti verið af völdum þunglyndis.
- Þegar vandað er til greiningar og meðferðar er árangur síst lakari en við aðra algenga sjúkdóma.
Fram kemur í sérfræðiáliti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) að þunglyndi sé og verði einn þyngsti og dýrasti sjúkdómurinn á heimsvísu, jafnt í þróuðum ríkjum sem í þróunarlöndum. Sjúkdómurinn er einstaklingnum þungur í skauti og dýr vegna vanlíðanar sem honum fylgir, vegna glataðra vinnudaga og minnkaðra lífsgæða. Þunglyndi hefur einnig mjög neikvæð áhrif á fjölskyldu viðkomandi. Samfélaginu er sjúkdómurinn erfiður, bæði vegna meðferðarkostnaðar og neikvæðra áhrifa á þjóðarframleiðslu.
Uppfært 1. febrúar 2011