Um verkefnið

Fræðslu- og forvarnaverkefnið Þjóð gegn þunglyndi er samstarfsverkefni á vegum Landlæknisembættisins sem unnið er í náinni samvinnu við heilsugæslustöðvar, félagsþjónustu sveitarfélaganna, skóla, kirkjuna og lögreglu. Verkefnið nýtur stuðnings heilbrigðisráðuneytisins.
 
Meginmarkmið verkefnisins er að draga úr þjáningum vegna þunglyndis og draga úr öðrum beinum og óbeinum afleiðingum þunglyndis, þ.m.t. ótímabærum dauðsföllum.

Með upplýsinga- og kynningarstarfi á næstu árum verður sjónum beint að þunglyndi, sem er stærsti áhættuþáttur sjálfsvíga, með það fyrir augum að fækka sjálfsvígum og sjálfsvígstilraunum svo sem nokkur kostur er.

Undirbúningur verkefnisins hófst í byrjun árs 2002, en þá tók til starfa við Landlæknisembættð verkefnisstjóri sjálfsvígsforvarna og fagráð var skipað til að útfæra tillögur og hugmyndir varðandi sjálfsvígsforvarnir.

Uppfært 1. febrúar 2011

Þjóð gegn þunglyndi





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli