Flúornotkun
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 2/2003
Tilmæli landlæknis varðandi flúornotkun
Allir aldurshópar skulu hvattir til að nota tannkrem með flúor:
-
tannburstun með flúortannkremi að styrkleika ³ 0.1% F-, tvisvar sinnum á dag, viðheldur lágmarksflúorstyrk í munnholi og er því afar áhrifamikill þáttur í daglegri vörn gegn tannátu hjá öllum aldurshópum
-
mælt er með því hjá börnum að nota lítið af tannkremi (0.1% F-), gagnið er ekki í réttu hlutfalli við magnið
-
við tannburstun barns sem er að taka fyrstu tennurnar og fram að tveggja ára aldri ætti að nota það magn tannkrems sem samsvarar fjórðungi stærðar naglar litla fingurs barnsins. Þegar allar barnatennurnar eru komnar upp og fram að sex ára aldri ætti að nota það magn tannkrems sem samsvarar stærð naglar litla fingurs barnsins
-
ekki er mælt með því að skola munn eftir tannburstun, það nægir að skyrpa ? þannig virkar flúorinn í tannkreminu lengur til varnar tannátu
-
skammtið börnum tannkrem til 9 ára aldurs.
Notkun flúorauka (flúorlakk/flúormunnskol/flúorsogtöflur/ flúortyggjó) er talin nauðsynleg meðal þeirra einstaklinga þar sem hætta á tannátu er mikil.
-
6, 12 og 15 ára árgöngum skal boðið upp á skolun tanna með flúorlausn, á tveggja vikna fresti allt skólaárið - á vegum heilsugæslunnar
-
fylgja skal fyrirmælum tannlæknis varðandi notkun á flúor-munnskoli, flúorsogtöflum og flúortyggjó til varnar tannátu.
7. janúar 2003
Landlæknir
Uppfært 4. mars 2007