HPV-bólusetning

HPV-bólusetning gegn leghálskrabbameini

 
Haustið 2011 hefst HPV-bólusetning gegn leghálskrabbameini. Veturinn 2011–2012 verður öllum stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 boðin HPV-bólusetning, en hún verður í framtíðinni hluti af almennum bólusetningum barna og mun ná til stúlkna í 7. bekk. Bólusetning á þessum aldri fellur vel að annarri bólusetningu 12 ára barna. Bólusett verður í skólum en í einstaka tilfellum á heilsu­gæslu­stöðvum.

HPV er skammstöfun fyrir Human Papilloma Virus, sem er algeng veira, einkum meðal ungs fólks, og smitast auðveldlega við kynmök. Talið er að um 80% þeirra sem stunda kynlíf smitist af veirunni einhvern tímann á ævinni, en veiran hefur margar undir­teg­undir sem geta valdið kyn­færa­sjúkdómum. Í flestum tilfellum hverfur veiran úr líkam­anum af sjálfu sér, en sumar tegundir hennar geta valdið viðvarandi forstigs­breyt­ingum í leghálsi sem með tímanum geta orðið að leghálskrabbameini.

HPV-bóluefnið er fyrirbyggjandi og því þarf að bólusetja stúlkur áður en þær hefja kynmök. Bóluefnið innheldur mótefnavaka gegn tveimur algengustu tegundum veirunnar sem valdið geta leghálskrabbameini. Talið er að bólusetningin gefi um 70% vörn gegn sjúk­dómnum.

Þar sem ekki fæst full vörn með bólusetningunni er nauðsynlegt að stúlkurnar fari reglulega í krabbameinsleit síðar á ævinni.

Um bólusetninguna
Bólusett verður þrisvar sinnum á 6–12 mánaða tímabili með bóluefninu Cervarix. Til að fá bestu vörnina er mikilvægt að fá alla þrjá skammtana innan árs.

Algengustu aukaverkanir bólu­efnisins eru verkur, roði og bólga á stungustað sem hverfa fljótt, en eins og gildir um aðrar bólusetningar eru alvarlegar aukaverkanir mjög sjaldgæfar. Þess eru þó dæmi að það líði yfir unglinga þegar þeir eru bólusettir en það orsakast ekki af bóluefninu sjálfu.

Ef foreldrar eða forráðamenn stúlkna ákveða að þiggja ekki HPV-bólusetninguna er hægt að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing í viðkomandi skóla símleiðis eða með tölvupósti og láta vita um þá ákvörðun áður en bólusetningin fer fram í skólanum.

Frekari fróðleikur um HPV

  Meira um HPV-veiruna og bólusetninguna

  Algengar spurningar og svör um HPV-bólusetninguna

  Kynningarbréf til foreldra/forráðamanna

  Fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Vefsett 1. september 2011

Nokkrar staðreyndir

Nokkrar staðreyndir

  • HPV-bólusetning kemur í veg fyrir flestar forstigs­breytingar í leg­hálsi og minnkar þannig hættuna á að fá leg­háls­krabbamein.

  • HPV eða Human Papiloma Virus er mjög útbreidd veira meðal ungs fólks.

  • Veiran smitast við kynmök og því er nauðsynlegt að bólusetja áður en kynlíf hefst.

  • Til að fá bestu vörnina er mikilvægt að fá alla þrjá skammtana innan árs.





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli