Fyrsta hjálp - Vinnureglur í óbyggðum
Björgunarskóli Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hefur látið útbúa Vinnureglur í óbyggðum sem byggja á námsefni Björgunarskólans og eru sérstaklega ætlaðar þeim sem sótt hafa námskeiðið „Fyrsta hjálp í óbyggðum“. Landlæknir hefur samþykkt vinnureglurnar og eru þær undirritaðar af honum.
Ákveðin skilyrði eru fyrir því hvar má beita vinnureglunum og við hvaða aðstæður.
Almennt gilda vinnureglurnar á Íslandi þegar fyrirséð er að flutningur á sjúkrahús tekur lengri tíma en 2 klukkustundir miðað við ástand sjúklings. Þessar aðstæður eru t.d. á hálendi landsins, á hafinu umhverfis landið og einnig í byggð við sérstakar aðstæður eins og náttúruhamfarir eða ófærð.
Eina undantekningin á þessu varðar vinnureglu 1 um ofnæmislost, en þar má hefja meðferð óháð hver flutningstími er á sjúkrahús. Vinnureglur í óbyggðum (PDF)
Skjalið skiptist í eftirtalda kafla:
- Vinnureglur í óbyggðum (inngangur)
- Vinnuregla 1: Ofnæmislost
- Vinnuregla 2: Sárameðferð
- Vinnuregla 3: Endurlífgun
- Vinnuregla 4: Hryggáverkar
- Vinnuregla 5: Liðhlaup
- Vinnuregla 6: Astma
Vefsett 14. mars 2011