Líffæragjafir

Taktu afstöðu til líffæragjafar

Embætti landlæknis hvetur fólk til að gera upp huga sinn varðandi það að gefa líffæri.
Á þessari síðu er myndband um líffæragjafir og bæklingur með upplýsingum um ýmsa þætti sem mikilvægt er að vita þegar afstaða til líffæragjafar er hugleidd.

Annað líf
Fræðslumynd um líffæragjafir á Íslandi, útgefin í Reykjavík 2009. (FLV, 103 MB)

Líffæragjafir hafa verið allnokkuð í umræðunni undanfarin misseri. Í þessari fræðslumynd er fjallað um fyrirkomulag líffæragjafa hér á landi. Læknar og aðrir fagaðilar útskýra hvernig þær ganga fyrir sig og aðstandendur líffæragjafa og líffæraþega greina frá reynslu sinni.

Útgefandi fræðslumyndarinnar er samstarfshópur fræðslumyndar um líffæragjafir. Yfirumsjón hafði Runólfur Pálsson læknir, en Landlæknisembættið annast dreifingu.

Handrit og stjórn upptöku: Páll Kristinn Pálsson
Kvikmyndagerð: Ólafur Rögnvaldsson, Ax kvikmyndagerð.
Lengd: 27 mínútur

Skylt efni á þessum vef:

  • Líffæragjafi. Taktu afstöðu til líffæragjafar (PDF, 467 KB)
    Bæklingur gefinn út af Landlæknisembættinu með stuðningi LSH, TR og Sambands ísl. tryggingafélaga. Önnur útgáfa, endurskoðuð 2006.

    ATHUGIÐ! Bæklingurinn er nú aðeins til á vefnum þar sem hann er í endurskoðun. Líffæragjafakortið er hluti af bæklingnum og því þarf að prenta hann út til ð geta notað kortið.

  • Lífsskrá
    Í lífsskrá er gefinn kostur á því að taka afstöðu til þess hvort fólk vill gefa líffæri eða vefi og gefinn kostur á nánari skýringum þar um. Á vefsíðunni er hægt að nálgast nauðsynleg eyðublöð.


Uppfært 4. október 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli