Um SKAFL.is
Vefurinn SKAFL.is (www.skafl.is) birtir alþjóðleg flokkunarkerfi til skráningar í heilbrigðisþjónustu. SKAFL er skammstöfun fyrir Stöðluð kóðun í alþjóðlegum flokkunarkerfum Landlæknisembættisins. Flokkunarkerfin hafa verið gerð aðgengileg á rafrænu formi um árabil á vef Landlæknisembættisins, en birtingarformið hefur ekki gert þeim full skil. Þar hefur t.d. vantað skýringartexta, millivísanir og frávísanir eins og við á hverju sinni. Af þessum sökum hafa vefskrárnar ekki getað komið að fullu í stað bóka.
Flokkunarkerfi eru notuð t.d. til að auðkenna sjúkdómsgreiningar, ýmis inngrip, svo sem skurðaðgerðir, og til skráningar á hjúkrunargreiningum og úrlausnum. Öll rafræn skráning í íslenskri heilbrigðisþjónustu byggir á aðgengilegum og viðeigandi flokkunarkerfum. Stór hluti starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar notar flokkunarkerfi daglega við skráningu, þ.á m. læknar, hjúkrunarfræðingar og læknaritarar, en fleiri stéttir hafa þörf fyrir kóðuð flokkunarkerfi við sína skráningu, s.s. sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar.
Vef þessum er ætlað að auðvelda þau störf, en rafræn birting tryggir einnig bætta dreifingu á uppfærslum og viðbótum. Almennar notendaleiðbeiningar um vefinn eru komnar á vefinn og ítarlegri leiðbeiningar fyrir einstök flokkunarkerfi bætast við síðar á árinu. Vefurinn SKAFL.is mun geta unnið með sjúkraskrárhugbúnaði að lokinni næstu uppfærslu, sjá nánar um tæknilegar útfærslur á síðunni um rafræn sjúkraskrárkerfi.
Vefurinn birtir öll flokkunarkerfi sem landlæknir hefur mælt fyrir um að nota skuli í íslenskri heilbrigðisþjónustu, nú rúmlega 34,000 skráð heiti, að undanskyldu ATC flokkunarkerfi fyrir lyf sem Lyfjastofnun birtir.
Lesa nánar: Leiðbeiningar um notkun vefsins skafl.is
Höfundarréttur flokkunarkerfa ©
Öll flokkunarkerfi á vef landlæknisembættisins eru varin höfundarréttarlögum. Landlæknisembættið hefur leyfi eigenda höfundarréttar til þýðingar og dreifingar á þessum flokkunarkerfum innanlands og til birtingar þeirra á vef. Útgáfa á prenti er háð viðbótarskilmálum. Sjá nánar fyrir hvert flokkunarkerfi um rétthafa.
Uppfært 3. september 2009