Klínískar leiðbeiningar

Tölvusneiðmyndir af kransæðum - Ábendingar - Greinargerð

Í samræmi við lög um landlækni nr. 41/2007 (sbr. 5.gr.) skipaði landlæknir nefnd til þess að vinna faglegar ráðleggingar um hvað teljast viðeigandi ábendingar fyrir notkun fjölsneiða tölvusneiðmynda af kransæðum (FS-TSK) samkvæmt núgildandi erlendum leiðbeiningum, heilbrigðistækniúttektum og grunnrannsóknum þar sem það á við.

Markmið með greinargerðinni er að skoða greiningarhæfni og notagildi  FS-TSK og setja fram ráðleggingar um skynsamlega notkun þessarar tækni.

Höfundar greinargerðarinnar eru Ragnar Daníelsen hjartalæknir og Sigurður Helgason læknir, en ráðgjafar þeirra voru læknarnir Birna Jónsdóttir, Eyþór Björgvinsson, Gestur Þorgeirsson, Gunnar Þór Gunnarsson, og Torfi F. Jónasson auk Guðlaugs Einarssonar geislafræðings hjá Geislavörnum ríkisins.

  Lesa nánar:


Stýrihópur um klínískar leiðbeiningar leggur til að vitnað sé til
þessara leiðbeininga á eftirfarandi hátt:


Daníelsen R, Helgason S. Ábendingar um notkun fjölsneiða tölvusneiðmynda af kransæðum. Klínískar leiðbeiningar. Landlæknisembættið 2007. (Skoðað dd.mán ár). Sótt á: /pages/1232  




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli