Induced abortions
Fyrstu lög sem heimiluðu fóstureyðingar á Íslandi eru frá árinu 1935. Í núgildandi lögum um fóstureyðingar nr. 25/1975 er kveðið á um að fóstureyðing sé heimil af læknisfræðilegum og félagslegum ástæðum eingöngu eða hvort tveggja og að hún skuli framkvæmd sem fyrst á meðgöngutímanum, helst innan 12 vikna meðgöngu. Eftir 16. viku er fóstureyðing heimiluð eingöngu af læknisfræðilegum ástæðum. Áður en fóstureyðing er heimiluð verður konan að gera grein fyrir aðstæðum og ástæðum fyrir umsókninni. Auk þess verður rökstudd greinargerð tveggja lækna eða læknis og félagsráðgjafa að liggja fyrir.
Árið 2007 voru skráðar 877 fóstureyðingar meðal kvenna með lögheimili á Íslandi. Tíðni fóstureyðinga miðað við 1.000 konur 15-44 ára var þá 13,5. Nánari upplýsingar um fóstureyðingar og þróun síðustu ár, fram til 2003, er að finna í skýrslunni Fóstureyðingar 2003.
Uppfært 31. ágúst 2009
Updated 31 August 2009
Tölur um fóstureyðingarStatistics on induced abortions