NCSP-IS (=NCSP+)
Á vegum Norrænu flokkunarmiðstöðvarinnar Nordic Centre for Classifications in Health Care er kóðum landskerfanna varpað í eitt kerfi sem nefnist NCSP+. Þar er öllum NCSP kóðum, jafnt úr grunnútgáfunni sem og landskóðum, varpað yfir í sérstaka NCSP+ kóða. Þessir kóðar byggja á grunni NCSP kerfisins með þremur bókstöfum og tveimur tölustöfum, en við bætist einn aukastafur í þriðja sæti og gefur hann til kynna um hverskonar inngrip er að ræða.
Þriðji stafurinn í NCSP+ gefur til kynna að um sé að ræða eitt af eftirtöldu:
A – svæfing (anesthesia)
D – geislagreining (diagnostic radiology)
E – holspeglun (endoscopy)
F – lífeðlisfræðilegt próf (physiological examination)
O – krabbameinsmeðferð (oncology)
R – endurhæfing (rehabilitation)
S – skurðaðgerð (surgery)
X – annað inngrip (other procedure)
Z – sérstakar kringumstæður (special circumstances).
Landlæknisembættið gefur nú út sérstaka landsútgáfu NCSP+ flokkunarkerfisins og kallast hún NCSP-IS. Í NCSP-IS eru allir kóðar NCSP+ en hinum séríslensku V-kóðum úr NCSP sleppt. Þessa útgáfu má nota við skráningu aðgerða í heilbrigðisþjónustunni en hún verður þá enn ítarlegri en ef NCSP er notað einvörðungu. Þess má geta að NCSP+ kerfið er notað við þróun NordDRG sjúklingaflokkunarkerfisins á sjúkrahúsum.
Þessi útgáfa er aðeins á rafrænu formi og án skýringartexta. Rafrænu skrárnar (xls og gagnagrunnsútgáfu) má nálgast í rammanum hér fyrir neðan og vefbirting er á skafl.is, sjá ramma hér til hægri. NCSP-IS. Um uppfærslu 2011.
© Nordic Medico-Statistical Committee (NOMESCO) á höfundarrétt á NCSP+ útgáfunni.
Örn Bjarnason á höfundarrétt á íslenskum þýðingum sem notaðar eru úr NCSP.
Uppfært 7, janúar 2011
NCSP-IS flokkunarkerfið
Excel útgáfa:
- NCSP IS, gildir frá 1. janúar 2011 (2 MB, xls)
- Vörpun V kóða NCSP í NCSP-IS, gildir frá 1. janúar 2007 (29 KB, xls)
Gagnagrunnsútgáfa (fyrir heilbrigðisstofnanir):