Úrsagnaskrá lífsýnasafna

Ábyrgðaraðili: Landlæknir

 

Vinnsluaðili: Landlæknir

 

Tilgangur: Að safna í eina skrá kennitölum þeirra einstaklinga sem afturkallað hafa ætlað samþykki sitt fyrir því að lífsýni þeirra séu vistuð í lífsýnasafni til notkunar við vísindarannsóknir sbr. lög nr. 110/2000. Þannig geta ábyrgðaraðilar vísindarannsókna séð til þess að viðkomandi sýni séu ekki notuð í slíkum tilgangi.

 

Innihald: Gögn um einstaklinga sem lagt hafa bann við því að lífsýni sem tekin eru úr þeim vegna þjónusturannsókna séu nýtt til vísindarannsókna eða vistuð í lífsýnasafni í því skyni.

 

Tímabil: Skráð hefur verið í grunninn frá árinu 2001.

 

Uppruni gagna: Úrsagnareyðublöð sem einstaklingar senda inn. Úrsagnir þurfa að berast á pappír og vera undirritaðar af einstaklingnum sjálfum eða forráðamanni.

 

Skráningaratriði: Nafn, kennitala og lögheimili þeirra einstaklinga sem sent hafa úrsagnarbeiðni til landlæknis eru vistuð á dulkóðuðu formi í grunninum, ásamt dagsetningu beiðninnar.

 

Sambærileg eða skyld gagnasöfn: Úrsagnarskrá vegna gagnagrunns á heilbrigðissviði.

 

Úrvinnsla og birting: Árlega eru birtar tölur yfir fjölda þeirra sem skráðir eru í úrsagnagrunninn.

 

Saga: Lög um lífsýnasöfn, nr. 110/2000, kveða á um að einstaklingur, sem úr hefur verið tekið lífsýni til þjónusturannsókna, geti hvenær sem er afturkallað ætlað samþykki sitt fyrir því að sýni úr honum verði vistað í lífsýnasafni til notkunar við vísindarannsóknir. Skal slík ósk vera tilkynnt landlækni og á hann samkvæmt lögunum á að halda úrsagnaskrá. Úrsagnargrunnur vegna lífsýnasafna var smíðaður árið 2001.

 

Uppfært 18. desember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli