Úrsagnaskrá miðlægs gagnagrunns
Ábyrgðaraðili: Landlæknir
Vinnsluaðili: Landlæknir
Tilgangur: Að safna í eina skrá kennitölum þeirra einstaklinga sem óska eftir því að upplýsingar um þá verði ekki fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði, sbr. lög nr. 139/1998. Þannig getur rekstrarleyfishafi útilokað að upplýsingar um viðkomandi aðila verði fluttar í gagnagrunninn.
Innihald: Gögn um einstaklinga sem lagt hafa bann við því að gögn um þá verði flutt í gagnagrunn á heilbrigðissviði.
Tímabil: Skráð hefur verið í grunninn frá árinu 1999.
Uppruni gagna: Úrsagnareyðublöð sem einstaklingar senda inn. Úrsagnir þurfa að berast á pappír og vera undirritaðar af einstaklingnum sjálfum eða forráðamanni.
Skráningaratriði: Nafn, kennitala og lögheimili þeirra einstaklinga sem sent hafa úrsagnarbeiðni til landlæknis eru vistuð á dulkóðuðu formi í grunninum, ásamt dagsetningu beiðninnar.
Sambærileg eða skyld gagnasöfn: Úrsagnarskrá vegna lífsýnasafna.
Úrvinnsla og birting: Árlega eru birtar tölur yfir fjölda þeirra sem skráðir eru í úrsagnagrunninn.
Saga: Lög um gagnagrunn á heilbrigðissviði, nr. 139/1998, kveða á um að sjúklingur geti hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um hann verði ekki fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissvið. Skal slík ósk vera tilkynnt landlækni og á hann samkvæmt lögunum að halda úrsagnaskrá. Úrsagnargrunnur var smíðaður árið 1999.
Uppfært 18. desember 2008