Kannanagrunnur

Ábyrgðaraðili:  Landlæknir

 

Vinnsluaðili:  Landlæknir

 

Tilgangur:  Að halda skipulega utan um gögn sem fást úr viðhorfskönnum landlæknis og tengjast eftirliti með heilbrigðisþjónustu. Viðhorfskannanir eru annars vegar gerðar meðal heilbrigðisstarfsmanna og hins vegar meðal notenda þjónustunnar.

 

Innihald:  Gögn úr viðhorfskönnunum landlæknis sem framkvæmdar hafa verið frá og með árinu 2004.

 

Tímabil:  Rafræn skrá frá og með 2004.

 

Uppruni gagna:  Gögn eru slegin inn í gagnagrunn af svarblöðum þeirra sem taka þátt í könnunum.

 

Skráningaratriði:  Úr viðhorfskönnun meðal heilbrigðisstarfsmanna eru skráðar upplýsingar um vinnuumhverfi, stjórnun stofnunar, gæði þjónustu, kennslu og rannsóknir og ánægju með starf og aðbúnað. 

 

Úr viðhorfskönnun meðal notenda eru skráðar upplýsingar um samskipti við starfsfólk, upplýsingagjöf, úrlausn erinda og ánægju með þjónustu.

 

Sambærileg eða skyld gagnasöfn:  Kannanir einstakra heilbrigðisstofnana.

 

Úrvinnsla og birting:  Unnið er úr könnunum hjá Landlæknisembættinu og niðurstöður kynntar viðeigandi heilbrigðisstofnunum.

 

Saga:  Frá árinu 2002 hafa viðhorfskannanir meðal notenda heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmanna verið hluti af reglubundu eftirliti landlæknis. Frá árinu 2004 hafa svör úr öllum könnunum verið skráð í sérstakan gagnagrunn til þess að auðvelda úrvinnslu og samanburð í tíma þegar fram líða stundir.

Uppfært 18. desember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli