Láttu í þér heyra

Vitundarvakning meðal almennings til að efla eigið öryggi í heilbrigðisþjónustu hefur fengið starfsheitið Láttu í þér heyra.


Vitundarvakningu þarf meðal almennings til þess að fólk geri sér ljóst hversu margt er hægt að gera til að efla eigið öryggi í heilbrigðisþjónustu. Mikilvægt er að almenningur geri hvað hægt er í þessu sambandi, enda hafa rannsóknir sýnt að þeir sem taka virkan þátt í meðferð sinni farnast betur en öðrum.

Landlæknisembættið birti síðla árs 2006 pistil í Morgunblaðinu í greinaflokknum Hollráð um heilsuna þar sem fólk var hvatt til þess að fylgjast vel með þeirri heilbrigðisþjónustu sem það fær svo og lyfjanotkun sinni. Einnig var fólk hvatt til þess að veita nákvæmar heilsufarsupplýsingar um sig og biðja um ítarlegar upplýsingar sem gætu að gagni komið í tengslum við eigin heilsu og það á rétt á skv. lögum um réttindi sjúklinga frá 1997.

Brýnt er að heilbrigðisstéttir hvetji notendur heilbrigðisþjónustu til að vera virkir þátttakendur og eftirlitsaðilar varðandi eigin meðferð. Rannsóknir hafa sýnt að þá eru meiri líkur á að sjúklingum farnist betur.

 Lesa nánar:  Láttu í þér heyra. (PDF).
Fræðsluerindi eftir Lauru Scheving Thorsteinsson, verkefnisstjóra gæðamála hjá Landlæknisembættinu.

Sjá einnig vefinn Speak Up á vegum bandarísku stofnunarinnar Joint Commission.

Síðast breytt/uppfært 24. september 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli