Mönnun í heilbrigðisþjónustu
Skortur á hjúkrunarfræðingum er vandamál hér á landi og fer versnandi samkvæmt upplýsingum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Ástæður þess eru m.a. að íbúum hefur fjölgað hér á landi, hlutfall aldraðra fer vaxandi, sífellt fleiri lifa með flókna langvinna sjúkdóma og inniliggjandi sjúklingar þarfnast sífellt meiri hjúkrunar þannig að álag á hjúkrunarfræðinga hefur aukist jafnt og þétt.
Árið 2006 var gerð greining á Landspítala- háskólasjúkrahúsi ( LSH) á stöðu hjúkrunarmönnunar sem sýndi að þá vantaði á annað hundrað stöðugildi (um 10%) hjúkrunarfræðinga til að sinna verkefnum sjúkrahússins og til að mæta fjarvistum vegna orlofs og veikinda. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að á næsta áratug fer 40% starfandi hjúkrunarfræðinga á eftirlaun.
Gæðum og öryggi ógnað
Samkvæmt upplýsingum frá heilsugæslu og hjúkrunarheimilum er ástandið einnig alvarlegt þar. Skortur á sjúkraliðum til starfa er ekki síður alvarlegt vandamál. Í ljósi þess að skortur á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum ógnar gæðum þjónustu og öryggi sjúklinga leitaði Landlæknisembættið til fulltrúa LSH, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri til að ræða á hvern hátt mætti sporna við manneklu meðal hjúkrunarfræðinga og í maí 2006 lagði vinnuhópurinn fram tillögur til úrbóta.
Mannekla meðal sjúkraliða
Í maí 2007 setti Landlæknisembættið á laggirnar vinnuhóp með fulltrúum frá Landlæknisembættinu, Sjúkraliðafélagi Íslands, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Landspítala háskólasjúkrahúsi, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðisskólans við Ármúla. Hlutverk hópsins er að leita leiða til að fjölga sjúkraliðum og endurskoða starfs- og ábyrgðarsvið og menntun sjúkraliða.
Skýrslur tengdar manneklu
Bent er á að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gaf út skýrsluna Mannekla í hjúkrun árið árið 2007 og heilbrigðisráðuneytið gaf út skýrslu árið 2006 sem heitir Spá um þörf fyrir vinnuafl í heilbrigðiskerfinu.
Sjá einnig:
Mat á stöðu öryggismála varðandi mönnun á Landspítala (LSH) í desember 2009 (PDF)
Greinargerð eftir Önnu Björg Aradóttur, Lauru Scheving Thorsteinsson,
Matthías Halldórsson. Send heilbrigðisráðherra í janúar 2010.
Uppfært 14. janúar 2010