Rannsóknir um gæði og öryggi

Rannsókn á öryggi sjúklinga – tíðni óvæntra skaða á íslenskum sjúkrahúsum

Rannsókn stendur nú yfir á tíðni óvæntra skaða á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri í samvinnu við viðkomandi stofnanir og heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

Auk eigin framlags hefur Landlæknisembættið fengið tvo styrki til að gera rannsóknina, annars vegar frá velferðarráðuneytinu og hins vegar frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Einnig hafa Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri lagt fram fé til rannsóknarinnar.

Umræða um öryggi sjúklinga er vaxandi í heiminum, en upplýsingar um fjölda óvæntra skaða á íslenskum sjúkrahúsum liggja ekki fyrir. Ef niðurstöður erlendra rannsókna eru sambærilegar niðurstöðum hér á landi má reikna með að árlega megi rekja dauðsföll á sjúkrahúsum hérlendis til óvæntra skaða.

Markmið rannsóknarinnar er að kanna tíðni óvæntra skaða á fyrrnefndum stofnunum.

Rannsóknin er samstarfsverkefni Landlæknisembættisins, Háskóla Íslands, Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri. Stuðst er við rannsóknaráætlanir sambærilegra rannsókna erlendis. Söfnun upplýsinga fer fram með skoðun 1000 sjúkraskráa, sem fundnar voru með slembiúrtaki úr sjúklingabókhaldi fyrir árið 2009 á sjúkrahúsunum tveimur. Skoðaðar eru skrár af kvennadeildum, skurðlækningadeildum og lyflækningadeildum. Bæði rafræn gögn og pappírsgögn eru skoðuð.

Skoðun sjúkraskrárgagnanna fer fram í þremur áföngum. Í fyrsta áfanga eru sjúkraskrár skoðaðar og leitað eftir 18 skilmerkjum, samkvæmt ákveðnum matslista. Þær skrár sem eitthvert skilmerkjanna á við halda áfram í annan áfanga. Þar meta tveir læknar skrárnar sitt í hvoru lagi til að greina og flokka óvæntan skaða, einnig eftir sérstökum matslista. Ef viðkomandi læknar eru ekki sammála eru gögnin ásamt samantekt um ágreining send til sérstaks ráðs sérfræðinga (þriðji áfangi), sem sker úr um hvort um óvæntan skaða hafi verið að ræða. Breytileiki milli matsmanna er metinn með tölfræðilegum prófum. Rannsóknin hefur hlotið leyfi Vísindasiðanefndar og Persónuverndar.

Þess er vænst að niðurstöður úr fyrsta áfanga rannsóknarinnar liggi fyrir næstkomandi haust.

Rannsóknin getur gefið innsýn í helstu orsakaþætti, tilurð og faraldsfræði óvæntra skaða sem getur stuðlað að markvissari umbótavinnu við að draga úr þeim. Niðurstöður geta einnig orðið liður í vitundarvakningu um mikilvægi öryggi heilbrigðisþjónustu og hvernig unnt er að efla það.

29. júní 2011

Laura Scheving Thorsteinsson
verkefnisstjóri




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli