Hreinlæti og örugg heilbrigðisþjónusta
| 7. febrúar 2007. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra undirritar samkomulag um þáttöku Íslands í verkefninu á málþingi um öryggi í heilbrigðisþjónustu. |
Ísland er formlega þátttakandi í verkefninu Hreinlæti og örugg heilbrigðisþjónusta haldast í hendur (á ensku Clean Care is Safer Care) á vegum Alþjóðaheilbrigðis-málastofnunarinnar, en heilbrigðisráðherra undirritaði yfirlýsingu þess efnis í febrúar 2007.
Þegar hafa heilbrigðisráðherrar 40 þjóða undirritað slíka yfirlýsingu, þeirra á meðal Ástralía, Bretland og Finnland. Undirritun yfirlýsingarinnar felur í sér ákveðna skuldbindingu um að taka þátt í að vinna að fækkun sýkinga sem eiga upptök sín í heilbrigðisþjónustu með ákveðnum aðgerðum svo sem:
- Viðurkenna ógn sýkinga sem eiga upptök sín í heilbrigðisþjónustu.
- Halda uppi stöðugum áróðri á landsvísu til að bæta handþvott meðal heilbrigðisstarfsmanna.
- Bæta aðgengi áreiðanlegra upplýsinga um sýkingar sem eiga upptök sín í heilbrigðisþjónustu til að geta gripið til viðeigandi ráðstafana.
- Deila reynslu og ef við á upplýsingum frá samtökunum World Alliance for Patient Safety sem eru á vegum Alþjóðaheilbrigðismálstofnunarinnar.
- Íhuga að nota verklagsreglur og vinnuleiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðismálstofnunarinnar til að berjast gegn sýkingum sem eiga upptök sín í heilbrigðisþjónustu, s.s. varðandi handþvott, blóðgjafir, sprautugjöf, bólusetningar, klínískar aðgerðir, notkun vatns, hreinlæti og förgun úrgangs
Jafnframt felur yfirlýsingin í sér skuldbindingu til að vinna með heilbrigðisstarfsfólki og samtökum þeirra til þess að:
- Efla fagleg vinnubrögð til að draga úr hættu á sýkingum sem eiga upptök sín í heilbrigðisþjónustu.
- Hvetja til frekari samvinnu rannsóknarstofnana, háskóla og annarra skóla þar sem menntun heilbrigðisstétta fer fram svo og heilbrigðisstofnana til að tryggja full not fyrirliggjandi þekkingar á sýkingum sem eiga upptök sín í heilbrigðisþjónustu.
- Hvetja yfirstjórnendur til að styðja og efla lykilstarfsfólk í að vera fyrirmyndir við að innleiða aðferðir til að sporna við sýkingum, sem eiga upptök sín í heilbrigðisþjónustu.
Uppfært 31. ágúst 2009