Vistunarmat

 Eldri hjón. Í stofunni heima.

Vistunarmat er faglegt, einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega búsetu á hjúkrunarheimili. Um er að ræða staðlað mat ásamt skilgreindum upplýsingum frá heilbrigðis- og félagsþjónustu og svæðisskrifstofu málefna fatlaðra auk læknabréfa frá læknum viðkomandi, eftir því sem við á.

Metnar eru félagslegar aðstæður, heilsufar og andlegt ástand auk þess sem metin er færni í athöfnum daglegs lífs og gefur niðurstaða vistunarmats til kynna hversu mikil þörf er fyrir langtíma búsetu á hjúkrunarheimili.

Síðan 1991 hefur vistunarmat verið forsenda umsóknar fyrir dvöl á hjúkrunarheimili. Vistunarmatsferlið er sniðið að erlendri fyrirmynd og hefur gefist vel hérlendis. Því er ætlað að endurspegla raunverulega þörf þess sem þarf á varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili að halda, óháð aldri. Er litið svo á að þetta fyrirkomulag sé upplýsandi og réttlát leið til að meta þörf fyrir langvarandi dvöl á hjúkrunarheimili.

Frá 1. janúar 2008 fluttist vinna við gerð vistunarmats frá þjónustuhópum sveitarfélaga  til vistunarmatsnefnda í hverju heilbrigðisumdæmi. Frá sama tíma var yfirumsjón með framkvæmd vistunarmats flutt frá heilbrigðisráðuneytinu til Landlæknisembættisins.

Hvenær skal sækja um vistunarmat?
Stefna heilbrigðisyfirvalda er að einstaklingi skuli gert kleift að búa á eigin heimili utan stofnana eins lengi og unnt er með viðeigandi heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Allt frá því að vistunarmatskerfið var tekið upp hefur gætt nokkurs misskilnings meðal aldraðra þess efnis að það geti borgað sig að sækja um vistunarmat til að tryggja sér sæti á biðlista ef svo kynni að fara að viðkomandi þyrfti einhvern tímann í framtíðinni að flytja á hjúkrunarheimili. Hið rétta er að þegar aðstæður eru orðnar þannig að fólk getur ekki lengur búið heima þrátt fyrir stuðning heilbrigðis- og félagsþjónustu, er tímabært að sækja um vistunarmat og  þarf þá viðkomandi að vera tilbúinn að þiggja hjúkrunarrými þegar það býðst.

Frá og með 1. janúar 2008 gildir vistunarmat, sem hefur verið samþykkt, í tólf mánuði. Hafi einstaklingi ekki boðist að flytja á hjúkrunarheimili innan þess tíma þarf að endurnýja matið. Gildistími vistunarmats, sem gert var fyrir 1. janúar 2008, er 18 mánuðir frá staðfestingu þess.

Umsókn um vistunarmat þarf að berast vistunarmatsnefndum á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á þessum vef (sjá hér fyrir neðan og í reit til hægri). Ekki er hægt að senda umsóknina rafrænt heldur verður að prenta hana út og koma til viðkomandi vistunarmatsnefnda. Einnig verður hægt að fá upplýsingar um vistunarmatsferlið hjá heimilislækni. 
 

Umsóknarferlið
Sá eða sú sem í hlut á eða einhver nákominn fyllir út umsókn um vistunarmat. Ef þörf krefur getur heimilislæknir aðstoðað við gerð umsóknarinnar. Umsóknin er síðan send til vistunarmatsnefndar í því heilbrigðisumdæmi þar sem viðkomandi á lögheimili. Umsóknin felur í sér heimild fyrir vistunarmatsnefndir til að afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga, m.a. hjá heilbrigðis- og félagsþjónustu, hafi umsækjandi notið þeirrar þjónustu.

 Heilbrigðisumdæmin á Íslandi
 Heilbrigðisumdæmin á Íslandi.
 Smellið á myndina til að skoða stærra kort.

Þegar umsókn um vistunarmat hefur borist vistunarmatsnefnd fer ákveðið ferli af stað. Til þess að matsnefndin geti komist að niðurstöðu þarf hið eiginlega vistunarmat að liggja fyrir, en það framkvæma heilbrigðis-
starfsmenn sem þekkja til viðkomandi. Þar að auki er byggt á ákveðnum skilgreindum upplýsingum frá heilbrigðis- og félags-
þjónustu, hlutaðeigandi læknum eða sjúkrastofnunum, eftir því sem við á.

Vistunarmatsnefndin ber ábyrgð á að afla þessara gagna. Miðað er við að niðurstaða vistunarmats liggi fyrir innan 6–8 vikna frá því að beiðni um vistunarmat berst nefndinni

Niðurstaða vistunarmats er kynnt umsækjanda skriflega og afrit er sent til heimilislæknis, heimahjúkrun, félagsþjónustu og, eftir atvikum, svæðisskrifstofu málefna fatlaðra. Áður en til flutnings á hjúkrunarheimili kemur þarf að liggja fyrir beiðni um vistunarmat, vistunarmatið sjálft, umsókn um hjúkrunarheimil og úthlutunin sjálf.

  Hér er hægt að nálgast eyðublað fyrir umsókn um vistunarmat og eins í reit efst til hægri á þessari vefsíðu.

Ástæða er til að vekja athygli umsækjenda um vistunarmat á því að þegar lífeyrisþegi flyst á hjúkrunar- eða dvalarheimili falla niður lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins (TR). Við það að greiðslur falla niður myndast réttur til vasapeninga sem eru tekjutengdir. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér þátttöku í dvalarkostnaði og kostnað við búsetu.

Frekari upplýsingar um þessi efni er að finna á vefsetri TR: http://www.tr.is/eldri-borgarar/husnaedi/

Vistunarmatskrá
Landlæknisembættið heldur utan um svo kallaða vistunarmatsskrá sem hefur að geyma tölulegar upplýsingar um fjölda þeirra sem óskað hafa eftir vistunarmati, fjölda þeirra sem eiga gilt vistunarmat og fjölda þeirra sem eru í langvarandi dvöl á hjúkrunarheimilum. Einnig endurspeglar vistunarskráin fjölda þeirra sem eru á biðlista eftir búsetu á hjúkrunarheimilum.

Í notkun er upplýsingakerfi fyrir dreifða skráningu vistunarmats þannig að hver skráning er í höndum vistunarmatsnefnda í hverju heilbrigðisumdæmi fyrir sig. Það er gert til að bæta þjónustuna auka öryggi upplýsinga og persónuvernd. Landlæknisembættið hefur faglegt eftirlit með að reglum um vistunarmat sé fylgt.


Síðast breytt/uppfært 10. júní 2010

Til fróðleiks:
Áfram veginn 2008. Upplýsingarit Tryggingastofnunar um lífeyrismál, skattamál, sjúkratryggingar og slysatryggingar eldri borgara.




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli