Eftirlit með hjúkrunarheimilum

Stuðst er við hugmyndafræði og aðferðir við úttekt Landlæknisembættisins á hjúkrunarheimilum sem greint er frá á síðunni Eftirlit með heilbrigðisstofnunum. Ýmiss konar upplýsinga og gagna er aflað frá framkvæmastjórn viðkomandi hjúkrunarheimilis. Fylgt er ákveðnum gátlista í sjálfri úttektarheimsókninni. Að auki er stuðst við gagnagrunn RAI mælitækisins og gæðavísa sem honum tengjast, en RAI mælitækið er notað með reglubundnum hætti til að meta hjúkrunarþarfir og heilsufar íbúa á öldrunarstofnunum.

Áður voru gerðar notendakannanir en ekki hefur verið fjármagn til þess síðustu ár. Hins vegar benda allar rannsóknir á mikilvægi notendakannana og því verða þær teknar aftur upp. Framkvæmd notendakannananna var þannig að íbúar fengu spurningalista afhentan og var sýnishorn af listanum sent til aðstandenda og þeir beðnir um að aðstoða einstaklinginn ef þeir teldu þörf á því.  

Vistunarmatsskrá nýtist til að meta ástand og þörf þeirra einstaklinga sem eru á biðlista
eftir hjúkrunarrými og hvort hjúkrunarheimili bjóði þeim sem eru í brýnustu þörfinni
þjónustu.

Gæðaráð Landlæknisembættisins í öldrunarhjúkrun hefur unnið að viðmiðum um áherslur í heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum.

Landlæknisembættið hefur unnið 27 lyfjagæðavísa er lúta að öryggi, hagkvæmni, gagnsemi og heildarlyfjanotkun íbúa á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Í nokkrum tilvikum er áætlað að safna upplýsingum um heildarnotkun ákveðinna lyfja eða lyfjaflokka sem nota má til að bera saman lyfjanotkun stofnana. Embættið hefur beint því til stjórnenda að nota lyfjagæðavísa sem þátt í innra eftirliti heimilanna.

Sjá einnig:

Á hjúkrunarheimili





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli