Births

Fæðingaskrá hefur verið haldin á kvennasviði Landspítala-háskólasjúkrahúss síðan 1972 en fram að þeim tíma voru allar fæðingatilkynningar sendar landlækni. Við hverja fæðingu er fyllt út eyðublað og upplýsingar sendar Fæðingaskrá og þjóðskrá. Í Fæðingaskrá eru skráð ýmis fæðingafræðileg atriði og hefur ársskýrsla verið gefin út síðan 1995.

Árið 2009 fæddust 5014 börn, þar af 4993 lifandi fæddir, í 4939 fæðingum samkvæmt Fæðingaskrá og er það svipaður fjöldi fæðinga og verið hefur síðustu árin.  Flestar fæðingar voru á Landspítala-háskólasjúkrahúsi eða um 70% en næst flestar á Sjúkrahúsinu á Akureyri eða um 10% fæðinga.  Heimafæðingar voru 89. Fæðingatíðni byggir á tvennu, annars vegar fjölda kvenna á barneignaraldri og hins vegar á földa barna, sem hver kona eignast á ævinni. Frjósemi og fjölgunarhlutfall kvenna hér á landi hefur lækkað um helming frá því um 1960 þegar það var hvað hæst. Þá eignaðist hver kona að meðaltali fjögur börn á ævinni en árið 2008 var talan komin í 2,1. Tölur um fæðingartíðni má einnig finna á vef Hagstofunnar

Uppfært 11. mars 2010
Updated 11 March 2010

Tölur um fæðingarStatistics on births

Tölur um fæðingar





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Built with LiSA from Eskill