Barnaskoðun
Tilmæli nr. 02/1999. Ung- og smábarnavernd
Eins og flestum þeim er starfa við ung- og smábarnavernd er kunnugt um hefur allt frá hausti 1997 verið unnið að nánari útfærslu á 3 ½ árs og 5 ára skoðunum barna.
Þróun í ung- og smábarnavernd lýkur trúlega aldrei. Má nefna að fyrirhugað er að taka upp nýtt fyrirkomulag ónæmisaðgerða barna frá næstu áramótum og taka í notkun nýtt mælitæki til að meta málþroska barna við 3 ½ árs aldur. Þeim þáttum og öðrum breytingum sem kunna að verða gerðar á áhersluþáttum í ung- og smábarnavernd verða gerð skil sérstaklega, þegar það þykir tímabært.
Með þessu dreifibréfi fylgja:
Framkvæmd heyrnarmælinga í ung- og smábarnavernd og heilsugæslu í skólum (doc)
- Viðbót/nánari útfærsla á Heyrn, bls. 34 og Heyrnarpróf, bls. 35 í Handbók heilsugæslustöðva um ungbarnavernd (1996).
Nýtt blað: Heyrnarmælingar á vegum skóla og heilsugæslu. (doc)
- Viðbót/nánari útfærsla á Heyrn, bls. 34 og Heyrnarpróf, bls. 35.
Nýtt blað: Hljóðholsmælingar - túlkun rita.
- Viðbót/nánari útfærsla á Heyrn, bls. 34 og Heyrnapróf, bls. 35.
Augu (doc)
- Kemur í stað kaflans Augu á bls. 13 í Handbók heilsugæslustöðva um ungbarnavernd (1996).
Sjónpróf (doc)
- Kemur í stað kaflans Sjónpróf á bls. 32-33 í Handbók heilsugæslustöðva um ungbarnavernd (1996).
Nýtt blað fyrir 3½ árs skoðun. (pdf)
Nýtt blað fyrir 5 ára skoðun. (pdf)
Mat á hreyfiþroska 5 ára barna (doc)
- Viðbót/nánari útfærsla á kaflanum Mat á hreyfiþroska á bls. 38 í Handbók heilsugæslustöðva um ungbarnavernd (1996).
Niðurstaða og óeðlileg frávik / Samantekt: Niðurstaða og óeðlileg frávik / Samantekt á mati á hreyfiþroska (doc)
- Ný blaðsíða/ kemur í stað blaðsíðu 39 í Handbók heilsugæslustöðva um ungbarnavernd (1996).
Nýtt spurningablað til foreldra / forráðamanna vegna 5 ára skoðunar. (doc)
Nýtt spurningablað til leikskólakennara vegna 5 ára skoðunar. (doc)
Auk þess fylgir hér listi, sem barnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur hefur tekið saman um fræðsluefni og fræðslu sem veitt er í ung- og smábarnavernd.
Vakin skal athygli á að mesta breytingin sem hér er mælst til að gerð verði varðandi ung- og smábarnaverndina er að börn verði tónmæld við 6 ára aldur en ekki við 5 ára aldur eins og fyrri leiðbeiningar, frá árinu 1996, gerðu ráð fyrir.
Einnig skal á það bent að til stendur að gefa handbók um ung- og smábarnavernd út í formi lausblaðamöppu um næstu áramót. Með því móti verður hægara að skipta út síðum í handbókinni og fella viðbætur að ákveðnum köflum.
Landlæknisembættið
Gefið út 2. september 1999
Til: Lækna og hjúkrunafræðinga á heilsugæslustöðvum, barnalækna, sjálfstætt starfandi heimilislækna og Miðstöðvar heilsuverndar barna.
Uppfært 4. mars 2007