Góðir starfshættir lækna

Hér má nálgast leiðbeiningarnar Góðir starfshættir lækna. Þær lúta fyrst og fremst að atriðum í samskiptum lækna við sjúklinga. Öllu máli skiptir að þar ríki traust og læknar leggi sitt af mörkum til að það traust haldist.

Það er best gert með því að leggja rækt við það tvennt sem gerir menn að góðum læknum, annars vegar að búa yfir og viðhalda traustri þekkingu og þjálfun og hins vegar að tryggja að samskiptin við sjúklinga séu byggð á gagnkvæmri virðingu og jafnræði. Læknar leggja sig almennt fram um að halda þessu trausti enda er það einn af hornsteinum samskipta læknis og sjúklinga.

Í þessum leiðbeiningum er fjallað um skyldur og ábyrgð lækna, lýst grundvallarreglum um góða starfshætti og kröfum um lækniskunnáttu, þjónustu og framkomu sem læknar verða að geta uppfyllt á öllum sviðum í starfi sínu.

Leiðbeiningarnar taka að töluverðu leyti mið af leiðbeiningum um góða starfshætti lækna (Good Medical Practice ) frá General Medical Council í Bretlandi, sem gefnar voru út árið 2001. Einnig styðjast þær við þau lög og leiðbeiningar sem nú þegar eru til hér á landi, þ.á m. lög um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990, lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997, læknalögu nr. 53/1988, lög um almannatryggingar nr. 117/1993, siðareglur lækna (Codex Ethicus) og loks sáttmála lækna (Physicians' Charter) sem var afrakstur verkefnisins Fagmennska í læknisfræði (The Medical Professionalism Project) og unnið af samtökum lyflækna í Bandaríkjunum og Evrópu.

Smellið hér: Góðir starfshættir lækna (pdf, 193 kb)

Uppfært 28. febrúar 2006




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli