Fara beint í efnið

Ofbeldis- og slysavarnir

Starfsemi embættis landlæknis á sviði ofbeldisvarna snýr að upplýsingaöflun, faglegri ráðgjöf til stjórnvalda og forvarnarvinnu í gegnum nálganir Heilsueflandi samfélags og Heilsueflandi leik- grunn- og framhaldsskóla. Embættið safnar tölulegum gögnum um fjölda þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi í gegnum rannsóknina Heilsa og líðan á Íslandi og í gegnum netkönnun sem Gallup framkvæmir að beiðni embættisins. Niðurstöðurnar úr rannsókninni Heilsa og líðan veita mikilvægar upplýsingar um tíðni ofbeldis, málaflokks sem hefur verið lítið rannsakaður hér á landi. Þess má geta að engar faraldsfræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar sem meta lífstíðaralgengi kynferðisofbeldis meðal landsmanna með jafn viðamikilli rannsókn og hér um ræðir.

Mikilvægt er að hefja forvarnir snemma og leiðbeina ungu fólki um heilbrigð samskipti og mörk í nánum samböndum, Embætti landlæknis hefur gefið út námsefni um andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í samböndum unglinga sem ætlað er til kennslu í 9. eða 10. bekk grunnskóla. Gagnvirk kennsla af þessu tagi fyrir unglinga er ein þeirra leiða sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnun mælir með sem forvörn gegn ofbeldi. Námsefnið, sem ber heitið Örugg saman, byggir á gagnreyndum aðferðum og býðst skólum að kostnaðarlausu.

Þá á embættið fulltrúa í hópi sem fylgir eftir þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025. Mælaborð um stöðu aðgerða er aðgengilegt á vef forsætisráðuneytis.

Tengt efni

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis